Miklar tafir á umferð í Reykjavík sökum bílslyss

Umferðarslys varð á Miklubraut.
Umferðarslys varð á Miklubraut. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bílslys varð við Miklubraut rétt í þessu þar sem dráttarbíll með bíl aftan í sér keyrði aftan á annan bíl. Fólkið er ekki alvarlega slasað.

Búið er að færa dráttarbílinn en loka þurfti einni akreininni sem varð til þess að skapa mikla umferðarteppu. Lögreglan á von á því að fari að greiðast úr umferðinni innan skamms. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert