Gerpissvæðið friðlýst

Frá Gerpisskarði. Horft yfir Vöðlavík og Krossanes.
Frá Gerpisskarði. Horft yfir Vöðlavík og Krossanes. Ljósmynd/Anna Berg Samúelsdóttir

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Gerpissvæðisins.

Í tilkynningu frá stjórnarráðinu er bent á að elstu jarðlög á Austurlandi, um 14 milljón ára gömul, finnist á Gerpissvæðinu. Tengist þau Barðsneseldstöðinni.

„Þar eru m.a. litrík líparíthraun sem eru á náttúruminjaskrá, og þykkt gjóskulag með plöntusteingervingum. Gerpissvæðið allt er á náttúruminjaskrá,“ segir í tilkynningunni.

Frá undirritun ráðherra fyrir austan í dag.
Frá undirritun ráðherra fyrir austan í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Sjaldgæfar plöntur og fuglar

Gerpissvæðið er á milli Norðfjarðar og Reyðarfjarðar og er sagt hafa hátt verndargildi sem byggi á mikilvægi jarðminja, landslags, menningarsögu og útivistargildi.

„Innan svæðisins eru einnig stór svæði sem bera einkenni víðerna auk þess sem þar er að finna búsvæði sjaldgæfra plöntutegunda og fugla.“

Gerpissvæðið var tilnefnt á náttúruverndaráætlun 2009-2013 með það að markmiði að vernda búsvæði nokkurra sjaldgæfra æðplöntutegunda og má þar nefna stinnasef, skógelftingu og lyngbúa sem eru á válista Náttúrufræðistofnunnar.

Óskar Íslendingum til hamingju

„Þetta er stór stund í sögu náttúruverndar á Íslandi,“ er haft eftir Guðmundi ráðherra.

„Gerpissvæðið er stórbrotið svæði, með fugla- og plöntulífi, minjum og merku landslagi sem mikilvægt er að varðveita. Ég óska Austfirðingum og Íslendingum öllum til hamingju með þessa friðlýsingu, en með henni höfum við tekið ákvörðun um að vernda þetta svæði um ókomna tíð.“

Viðstaddir undirskriftina voru auk ráðherra og sveitarstjóra, fulltrúar sveitarstjórnar  og umhverfis- og skipulagsnefndar Fjarðabyggðar, ásamt starfsmönnum ráðuneytisins, Umhverfisstofnunar og sveitarfélagsins, og fulltrúum landeigenda, en stækkunin er sögð hafa verið unnin í góðu samráði fulltrúa þessara aðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert