Fjórir í öndunarvél

Fimm af sjö á gjörgæslu eru óbólusettir.
Fimm af sjö á gjörgæslu eru óbólusettir. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

37 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 en þeir voru 36 í gær. Sjö eru á gjörgæslu og fjórir þeirra eru í öndunarvél. Fimm af sjö á gjörgæslu eru óbólusettir.

Þetta kemur fram á vef spítalans.

8.593 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.354 börn.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa 303 lagst inn vegna Covid-19 á Landspítala.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert