Steig óvart á bensíngjöf og ók á tré

Ökuferðin endaði með ósköpum.
Ökuferðin endaði með ósköpum. Ljósmynd/Lögreglan

Alls var tilkynnt um 45 umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu vikuna 1. - 7. maí og voru sex vegfarendur voru fluttir á slysadeild.

Þetta kemur fram á vef lögreglunnar.

Tvö umferðarslys voru tilkynnt laugardaginn 7. maí. Skömmu fyrir hádegi var bifreið ekið frá Stjörnugróf yfir grasbala og þvert yfir innkeyrslu á einkalóð við Blesugróf og hafnaði bifreiðin þar á stóru tré. Ökumaður kvaðst hafa stigið af misgáningi á eldsneytisgjöf í stað hemla þegar hann ætlaði að stöðva bifreiðina og því ekið á tréð á talsverðri ferð. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild. 

Um kvöldið var bifreið ekið vestur Njarðargötu, við Freyjugötu, þegar rafmagnshlaupahjóli var hjólað á götunni norður Freyjugötu inn á gatnamót Njarðargötu svo árekstur varð. Freyjugata er merkt einstefna í suður og hjólreiðamaðurinn því hjólað gegn einstefnu. Hjólreiðamaðurinn, sem var ekki með öryggishjálm, var fluttur á slysadeild.

Mánudaginn 2. maí keyrði bifreið á gangandi vegfaranda við gangbraut við Laugaveg. Að sögn vitna var grænt ljós á götuvitum fyrir akandi umferð og töldu vitni því hafa verið rautt ljós fyrir gangandi þegar vegfarandinn hljóp viðstöðulaus norður yfir gangbrautina í veg fyrir bifreiðina.

Þriðjudaginn 3. maí var ekið á bifreið við gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Ökumaður bifreiðarinnar, sem ekið var á, kvaðst hafa stöðvað við gatnamótin þar sem hefði kviknað rautt ljós á umferðarstýringu fyrir umferð vestur Reykjanesbraut og bifreið hans því kyrrstæð. Sami ökumaður var fluttur á slysadeild.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert