Herjólfur fastur í Þorlákshöfn vegna bilunar

Herjólfur á siglingu.
Herjólfur á siglingu.

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur hefur verið föst í Þorlákshöfn í kvöld en upp kom bilun í stefnishurð ferjunnar. Þetta kemur fram á Facebook-síðu ferjunnar.

Þar segir, að verið sé að vinna að viðgerðum.

„Við komum til með að senda frá okkur tilkynningu þegar Herjólfur leggur af stað með áætluðum komutíma til Vestmannaeyja. Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í færslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert