„Það þarf að fá botn í þetta“

Teitur Björn Einarsson og Björn Leví Gunnarsson.
Teitur Björn Einarsson og Björn Leví Gunnarsson. Samsett mynd

Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það sé alvarlegt mál að Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segist hafa fengið heimild frá nefndasviði Alþingis til að sjá skýrslu ríkisendurskoðanda um söluna á Íslandsbanka áður en hún var birt opinberlega daginn eftir. 

„Hvernig kvittaði nefndasvið Alþingis upp á þessa meðferð trúnaðarupplýsinga úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, eða veitti forseti sjálfur leyfi fyrir meðferð þessara upplýsinga eins og áskilið er í starfsreglunum? Það þarf að fá botn í þetta,“ sagði Teitur Björn, sem gerði starfsreglur fastanefnda og meðferð trúnaðarupplýsinga í þeim að umtalsefni á Alþingi í dag. 

Teitur bendir á umfjöllun Morgunblaðsins í dag, þar sem Björn Leví segist aðspurður hafa séð skýrsluna áður en hún var birt opinberlega. 

„Já, á fullkomlega löglegan hátt sem við erum með kvittað upp á frá nefndasviði Alþingis. Það kallast að trúnaður yfirfærist vegna svona gagna. Nefndarmenn sem fá trúnaðargögn, önnur en þau sem eru birt í lokuðu herbergi, geta deilt trúnaði með öðrum þingmönnum,“ sagði Björn Leví í samtali við Morgunblaðið. 

Teitur Björn segir að þetta fái ekki staðist.

„Trúnaður er ekki framseljanlegur með þessum hætti. Í 3. mgr. 40. gr. starfsreglna fastanefnda þingsins stendur, með leyfi forseta: „Aðrir þingmenn hafa ekki aðgang að trúnaðarupplýsingum nefndar.“ Það þarf að leita sérstaks leyfis forseta ef gera á undantekningu á þessari reglu,“ segir Teitur. 

Hann segir einig, að Björn Leví hafi frjálslega brigslað tilteknum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins um að hafa rofið trúnað „að því er virðist eingöngu vegna þess að hann sjálfur hafði aðgang að skýrslunni. Herra forseti. Þetta er alvarlegt mál sem þarfnast skýringar.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert