Komu álft til bjargar sem sat föst í ísnum

Hér má sjá álftina og slökkviliðsmennina.
Hér má sjá álftina og slökkviliðsmennina. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Störf slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu eru af ýmsum toga. Í gær skelltu tveir slökkviliðsmenn út á Reykjavíkurtjörn til að aðstoða álft sem sat föst í ísnum.

Slökkviliðið deildi mynd af björgunaraðgerðinni á Facebook. Eins og má sjá þá þurfti að vanda til verka enda ísinn blautur og auðvelt að misstíga sig við slíkar aðstæður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert