Opið hús og „fimma“ í boði á Bessastöðum

Guðni Th. Jóhannesson, forseti íslands, gefur Eiríki Benedikt Elíassyni fimmu.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti íslands, gefur Eiríki Benedikt Elíassyni fimmu. Eggert Jóhannesson

Opið hús á Bessastöðum er hluti af Safnanótt á Vetrarhátíðinni sem nú stendur yfir á höfuðborgarsvæðinu með gnótt viðburða en gestum hátíðarinnar bauðst að sækja fjölmörg söfn í gær og skoða ótal sýningar þar sem boðið var upp á fjölbreytta dagskrá.

Silent diskó var í boði á bókasafni Kópavogs.
Silent diskó var í boði á bókasafni Kópavogs. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áherslan að þessu sinni var á óhefðbundna viðburði svo ekki er örgrannt um að gestir og gangandi hafi öðlast nýja sýn á söfn höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi.

Ljósmyndari Morgunblaðsins rak nefið inn á Bessastöðum þar sem Guðni Th. Jóhannesson forseti tók á móti gestum embættisbústaðar síns með virktum, háum sem lágum, og Eiríkur Benedikt Elíasson fékk þar „fimmu“, eins og það heitir, í boði íslenska lýðveldisins.

Ungir spilarar úr Skólahljómsveit Kópavogs
Ungir spilarar úr Skólahljómsveit Kópavogs mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ungir spilarar úr Skólahljómsveit Kópavogs.
Ungir spilarar úr Skólahljómsveit Kópavogs. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert