Bæta við 300 bókanlegum bílastæðum

Keflavíkurflugvöllur bætir við bílastæðum fyrir páskana.
Keflavíkurflugvöllur bætir við bílastæðum fyrir páskana. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Opnað var fyrir 300 ný bílastæði við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli í dag sem hægt er að bóka á vef vallarins.

Um er að ræða nýmalbikuð viðbótarstæði sem hægt var að bæta við eftir að framkvæmdum við þau var hraðað fyrir helgi. Aðeins er hægt að nota stæðin séu þau bókuð fyrir fram á vef Keflavíkurflugvallar.

Ekki er ljóst hvenær viðbótarstæðin verða fullnýtt. Þegar það gerist og ekki er lengur hægt að bóka stæði á vef Keflavíkurflugvallar eru ferðalangar hvattir til að nýta sér aðra samgöngumáta. Má þar nefna ferðir með bílaleigubílum, leigubílum, rútum eða strætisvögnum. Hér má finna upplýsingar um allar samgönguleiðir til og frá flugvellinum.

Eru gestir flugvallarins hvattir til að mæta snemma í flug þar sem töluverð umferð er um hann nú um páskana. Gestir eru einnig hvattir til að nota sjálfsafgreiðslustöðvar til að innrita sig í flug eftir því sem hægt er. Opnað er fyrir innritun í flug kl. 03:45 að morgni og öryggisleit er opnuð kl. 04:00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert