Ísland leggur til 300 milljónir í kaup á skotfærum

Ísland fjármagnar skotfæri til Úkraínu.
Ísland fjármagnar skotfæri til Úkraínu. AFP

Ísland mun styðja við innkaup Tékklands á skotfærum fyrir Úkraínu og leggja fjármuni í kaup á búnaði fyrir konur í úkraínska hernum.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.   

„Lítið framboð hefur verið af skotfærum og hefur Tékkland, í samvinnu við helstu samstarfsríki Íslands, tekið að sér að útvega skotfæri fyrir stórskotalið Úkraínu sem gegnir lykilhlutverki við varnir landsins. Gert er ráð fyrir að um tveimur milljónum evra verði varið til verkefnisins af Íslands hálfu,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Upphæðin samsvarar um 298 milljónum króna.

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra.
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra. Eggert Jóhannesson

Brýnt að styðja Úkraínu áfram

„Það er brýnt að halda áfram að styðja Úkraínu af krafti, en þannig leggjum við ekki aðeins okkar af mörkum til varnar íbúum landsins, heldur sömuleiðis alþjóðalögum í stærra samhengi og okkar eigin öryggishagsmunum. Stefna um stuðning við Úkraínu sem nú liggur fyrir Alþingi mun ramma þennan stuðning inn til lengri tíma, en á sama tíma ætlum við áfram að hreyfa okkur hratt og styðja við frumkvæðisverkefni af þessu tagi,“ er haft eftir Bjarna Benediktssyni utanríkisráðherra. 

Þá kemur fram að Ísland muni styðja innkaup á búnaði fyrir konur í úkraínska hernum. Fram kemur að hlutfall kvenna í hernum hafi vaxið mjög á síðustu árum, sérstaklega eftir að innrás Rússa hófst.

Til að koma til móts við þarfir kvenkyns hermanna sé lagt upp með að útvega einkennisföt, skotheld vesti, læknis- og hreinlætisvörur fyrir 75 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert