Munu rannsaka sýklalyfjaónæmi á Íslandi

Sú sérstaða sem gerir Ísland bæði einstakt og ákjósanlegt til …
Sú sérstaða sem gerir Ísland bæði einstakt og ákjósanlegt til slíkra rannsókna er landfræðileg einangrun, íbúafjöldinn og hversu auðvelt er að fylgjast með sýklalyfjanotkun og sýklalyfjaónæmi bæði hjá mönnum og dýrum, að því er MAST greinir frá. mbl.is/Kristinn Magnússon

Teymi íslenskra og bandarískra vísindamanna hefur verið sett á laggirnar til að rannsaka sýklalyfjaónæmi á Íslandi. Sérstaða landsins gerir það að ákjósanlegum vettvangi til að rannsaka þessa vaxandi ógn við lýðheilsu. Rannsókn teymisins er ætlað að skapa þekkingu til að viðhalda lágu hlutfalli ónæmis í landinu og vinna gegn þróun ónæmis annars staðar í heiminum.

Rannsóknin byggist á „einni heilsu“-aðferðafræðinni og nær þannig til manna, dýra, matvæla og umhverfis á landsvísu, með það að markmiði að auka þekkingu okkar á því hvernig sýklalyfjaónæmar bakteríur breiðast út. Ætlunin er að ná til sem flestra þátta með því að rannsaka E. coli-bakteríuna sem finnst í búfénaði, umhverfi, svo og á innlendum og innfluttum kjötvörum og bera þær saman við E. coli-bakteríur sem greinast í sýkingum í mönnum, að því er Matvælastofnun greinir frá í tilkynningu. 

Rannsóknarteymið er skipað þverfaglegum sérfræðingum sem rannsaka munu vistfræði baktería og sýklalyfjaónæmis svo og áhrif þess á dýr, matvæli og menn. Þær stofnanir sem koma að rannsókninni eru Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum, MATÍS (matvælarannsóknir Íslands), Matvælastofnun; Aðgerðastofnun gegn sýklalyfjaónæmi, George Washington University, Washington DC (ARAC) og Vísindastofnun vistkerfis og þjóðfélags, Northern Arizona University, Arizona (ECOSS).

Nánar hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert