Sunneva og stjörnurnar elska bert á milli

Sunneva Eir, Jennifer Lopez og Beyoncé hafa allar klæðst bert …
Sunneva Eir, Jennifer Lopez og Beyoncé hafa allar klæðst bert á milli tískunni. Samsett mynd

Það eru ekki allir hrifnir af bert á milli tískunni en þó má finna fjölmargar stjörnur sem greinilega elska að klæðnaðurinn sé kominn aftur í tísku. Í sumar hafa allt frá íslenskum samfélagsmiðlastjörnum til stjarnanna í Hollywood sýnt á sér magavöðvana í stuttum bolum. 

Samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Eir er afar dugleg að ganga í fötum með bert á milli. 

Leikkonan Katie Holmes sást í hvítum topp og hvítum suttubuxum í stíl á stefnumóti með Jamie Foxx á dögunum, aðeins nokkrum vikum eftir að þau voru sögð vera hætt saman. 

#katieholmes out for dinner

A post shared by Mean.Girls (@mean.girls7) on Jul 18, 2018 at 7:43am PDT

Jennifer Lopez skellti sér líka út á lífið með kærastanum með bert á milli þegar hún klæddist röndóttum buxum og toppi í stíl. 

Alex and Jennifer out in New York City the other day! @arod @jlo

A post shared by Alex Rodriguez Fan Page (@arodfans13) on Jul 10, 2018 at 6:13pm PDT

Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kim Kardashian hætti líklegast aldrei að klæðast bert á milli og er það daglegt brauð þegar stjarnan berar á sér magann. 

Kim Kardashian West fær vel greitt fyrir færslur á Instagram.
Kim Kardashian West fær vel greitt fyrir færslur á Instagram. AFP

Söngkonan Beyoncé var komin í sumargírinn í febrúar og birti mynd af sér á Instagram í stuttri hettupeysu og gulu pilsi. 

A post shared by Beyoncé (@beyonce) on Feb 26, 2018 at 10:55am PST

Leikkonan Kristen Stewart sést oft með bert á milli. Á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor breytti hún þó aðeins til og klæddist opinni hvítri skyrtu við buxur á rauða dreglinum. 

Kristen Stewart.
Kristen Stewart. AFP
Kristen Stewart.
Kristen Stewart. AFP

Olivia Munn var með bert á milli í vor þegar hún kynnti sér föt Stellu McCartney. 

Olivia Munn.
Olivia Munn. AFP




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál