Í síðustu viku var kominn smá vorfílingur í landsmenn og það þýðir aðeins eitt – nú er hlaupadellan að yfirtaka landann. Hvort sem markmiðið er að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, hlaupa Laugaveginn eða einfaldlega skokka í kringum Rauðavatn þá finnur þú allt sem þú þarft til að koma þér í hlaupagírinn á óskalista vikunnar!
Ef það er eitthvað eitt sem þú verður að vera með á hreinu fyrir hlaupin þá eru það hlaupaskórnir. Þeir eru algjört lykilatriði og geta skipt sköpum bæði í æfingarferlinu sjálfu og á keppnisdegi.
Það er því mikilvægt að vanda valið, en úrvalið af hlaupaskóm hefur sjaldan verið betra en það er í dag. Þessir skór frá On Running henta fyrir fjölbreytt götuhlaup, en þeir eru með geggjaðri dempun sem dekrar við fæturna.
Það getur verið snúið að finna góðan hlaupafatnað sem hentar íslenskri veðráttu, enda óþægilegt að verða of heitt eða of kalt í miðju hlaupi. Þessi flísjakki frá Metta Sport er fullkominn fyrir veturinn og vorið, en hann er í senn mjúkur, léttur og hlýr.
Þegar hlaupin fara að lengjast er algjör snilld að eiga gott hlaupavesti eins og þetta með góðum vatnsbrúsum, enda mikilvægt að vökva sig rétt í hlaupunum!
Á köldum dögum er nauðsynlegt að eiga hlýjar hlaupabuxur eins og þessar. Þær eru frá merkinu Arc'tyrex og eru léttar, teygjanlegar og hlýjar með góðri öndun og tveimur vösum á hliðunum. Fullkomnar í vetrarhlaupin!
Allir hlauparar verða að eiga góðan hlaupajakka. Þessi tikkar í ansi mörg box, sérstaklega fyrir okkur sem búum á Íslandi, en hann er léttur, vatnsfráhrindandi, með endurskini allan hringinn og hentar fyrir allt að -5 °C.
Síðan hvenær eru litrík hlaupasólgleraugu svona fáránlega töff? Það er eitthvað við þau – hvort þau láti mann hlaupa hraðar er ekki vitað, en þau virðast búa yfir einhverjum töfrum fyrir heildarlúkkið.
Hér er enn ein varan sem er ómissandi að eiga á Íslandi – strokkur úr 100% Merino-ull sem hlýjar hálsinum á köldum dögum!
Það virðast gilda öðruvísi reglur fyrir hlaupaderhúfur en venjulegar derhúfur, því það þykir ekkert eðlilegra en að nota þær sama hvernig viðrar – ekki bara í sól, heldur líka í rigningu og snjókomu!
Þetta flotta og létta vesti frá Aim'n er góð viðbót í fataskáp hlauparans og þarf ekki betri útskýringu en það!
Heimsfrægi rithöfundurinn Haruki Murakami hefur stundað langhlaup um langt árabil. Hann skrifar um reynslu sína í bókinni What I Talk About When I Talk About Running.