Jafnt hjá Aftureldingu/Fram og ÍR

ÍR-ingar eru í sjötta sæti Inkasso-deildarinnar eftir fyrstu fjórar umferðirnar.
ÍR-ingar eru í sjötta sæti Inkasso-deildarinnar eftir fyrstu fjórar umferðirnar. mbl.is/Eggert

Afturelding/Fram tók á móti ÍR í 4. umferð Inkasso-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld en leiknum lauk með 1:1 jafntefli. Rakel Lind Ragnarsdóttir kom heimakonum yfir á 51. mínútu en Nótt Jónsdóttir jafnaði metin fyrir ÍR á 57. mínútu og þar við sat.

Bæði lið hafa verið í talsverðum vandræðum í upphafi móts en Afturelding/Fram er í sjöunda sæti deildarinnar með 3 stig á meðan ÍR er í sjötta sætinu með 4 stig. Afturelding/Fram sækir Fjölni heim í næstu umferð en ÍR fær Hamrana í heimsókn í Breiðholtið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert