Miðasala á leik Íslands og Andorra hefst í hádeginu

Aron Einar Gunnarsson, Ari Freyr Skúlason og Jón Daði Böðvarsson …
Aron Einar Gunnarsson, Ari Freyr Skúlason og Jón Daði Böðvarsson fagna marki gegn Moldóvum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Miðasala á viðureign Íslands og Andorra í undankeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu hefst klukkan 12 á hádegi í dag.

Leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum 14. október klukkan 18.45 þremur dögum eftir leik Íslendinga og heimsmeistara Frakka á Laugardalsvellinum en miðar á þann leik seldust upp á nokkrum mínútum í síðustu viku.

Miðasalan fer í gegnum tix.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert