ÍBV fær bandarískan sóknarmann

Madison Wolfbauer í leik með skólaliði sínu
Madison Wolfbauer í leik með skólaliði sínu Twitter/@bgsuwsoc

ÍBV hefur skrifað undir samning við bandarísku knattspyrnukonuna Madison Wolfbauer, hún mun spila með liðinu út tímabilið.

ÍBV situr í 4. sæti í Bestu deild kvenna með 17 stig eftir 10 leiki.

ÍBV kynnti Madison  til leiks á heimasíðu sinni í dag en hún er 22 ára gamall sóknarmaður og kemur til Íslands frá næstefstu deild í Frakklandi þar sem hún lék fyrr á árinu.

Hún var valin sóknarmaður ársins í Mið-Ameríkudeildinni í fyrra þegar hún lék með knattspyrnuliði sínu í Bowling Green-háskólanum.

ÍBV fékk annan bandarískan sóknarmann fyrir tímabilið, Sydney Carr, en hún meiddist illa í fyrsta leik tímabilsins og lék einungis um 6 mínútur með félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert