Fred hefur staðist læknisskoðun hjá United

Brasilíski miðjumaðurinn Fred mun skrifa undir samning við Manchester United …
Brasilíski miðjumaðurinn Fred mun skrifa undir samning við Manchester United á næstu sólahringum. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Fred hefur staðist læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United en það er Craig Norwood, blaðamaður í Manchester sem greinir frá þessu. Fred er 25 ára gamall miðjumaður sem hefur spilað með Shakhtar Donetsk í Úkraínu, undanfarin fimm ár. Hann mun skrifa undir samning við félagið á næstu sólahringum.

Kaupverðið á leikmanninum er talið vera í kringum 52 milljónir punda en það samsvarar rúmlega 7 milljörðum íslenska króna. Hann verður fyrstu kaup Jose Mourinho, knattspyrnustjóra United í sumar en félagið er einnig sagt vera að klára kaupin á bakverðinum Diogo Dalot frá Porto.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert