James Maddison til Leicester

James Maddison skrifaði undir fimm ára samning við Leicester í …
James Maddison skrifaði undir fimm ára samning við Leicester í dag. Ljósmynd/@LCFC

James Maddison er genginn til liðs við enska knattspyrnufélagið Leicester City en hann kemur til félagsins frá enska B-deildarliðinu Norwich City. Maddison skrifar undir fimm ára samning við Leicester en kaupverðið er talið vera í kringum 20 milljónir punda.

Þessi 21 árs gamli miðjumaður er þriðji leikmaðurinn sem Claude Puel, knattspyrnustjóri liðsins fær til félagsins í sumar. Leicester hefur þegar tryggt sér þjónustu þeirra Jonny Evans og Ricardo Pereira. 

Maddison spilaði 44 leiki með Norwich í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði fjórtán mörk og lagði upp önnur átta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert