Gylfi: Héldum að þakið væri að rifna af húsinu

Tómas Þór Þórðarson, Bjarni Þór Viðarsson og Gylfi Einarsson sátu á varamannabekkjum Liverpool og ræddu leik Liverpool gegn Manchester City sem hefst klukkan 15.45 í dag.

„Það eru 90 mínútur eftir af þessari sögu sem er Pep og Klopp,“ sagði Tómas Þór en fullt af glæsilegum mörkum hafa komið í leikjum liðanna.

„Þetta er nánast alltaf stórkostlegt. Við Bjarni vorum hérna í 2:2-leikjunum þegar Salah-markið kom og við héldum að þakið væri að rifna af húsinu,“ sagði Gylfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert