Leikmaður United dregur sig úr hópnum

Harry Maguire.
Harry Maguire. AFP/Paul Ellis

Knattspyrnumaðurinn Harry Maguire hefur dregið sig úr leikmannahópi Englands vegna meiðsla. 

Maguire mun gangast undir skoðun hjá Manchester United á næstu dögum en ekki er búist við því að meiðslin séu alvarleg.

Enska knattspyrnusambandið tilkynnti tíðindin í kvöld en ásamt honum hafa Kyle Walker, leikmaður Manchester City, og Sam Johnstone, markvörður Crystal Palace, báðir dregið sig einnig úr hópnum vegna meiðsla. 

Rico Lewis, leikmaður Manchester City, og James Trafford, markvörður Burnley, voru þá kallaðir inn í landsliðshópinn í stað þeirra. 

England mætir Belgíu á Wembley næstkomandi þriðjudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert