Frakkar hrósuðu sigri í Nice

Frakkar fagna einu af mörkum sínum kvöld.
Frakkar fagna einu af mörkum sínum kvöld. AFP

Öflugt lið Frakka vann 3:1 sigur gegn Ítölum í vináttleik sem fram fór á Allianz Riviera vellinum í Nice í kvöld.

Frakkar komust í 2:0 á fyrsta hálftíma leiksins með mörkum frá Samuel Umtiti og Antoine Griezmann úr vítaspyrnu. Varnarmaðurinn Leonardo Bonucci minnkaði muninn fyrir Ítala á 36. mínútu en Ousmane Dembele innsiglaði sigur Frakkana á 63. mínútu leiksins.

Frakkar eru að undirbúa sig undir HM en Ítalir sátu eftir með sárt ennið og verða ekki með í úrslitakeppni HM í fyrsta sinn síðan 1958.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert