Ingibjörg Sigurðardóttir var hetja Djurgården í 2:1-sigri á Västerås í 32-liða úrslitum sænska bikarsins í fótbolta í dag. Hún skoraði sigurmarkið á 75. mínútu og tryggði A-deildarliðinu farseðilinn í 16-liða úrslitin.
Västerås er í næstneðsta sæti í B-deildinni og kom Ingibjörg sínu liði til bjargar. Miðvörðurinn var í byrjunarliði Djurgården og spilaði fyrstu 85. mínúturnar. Guðbjörg Gunnarsdóttir lék ekki með liðinu í dag.