Gladbach endurheimti þriðja sætið

Marcus Thuram skoraði eitt marka Gladbach í dag.
Marcus Thuram skoraði eitt marka Gladbach í dag. AFP

Borussia Mönchengla­dbach endurheimti þriðja sætið í þýsku efstu deildinni í knattspyrnu í dag með því að leggja Union Berlín að velli, 4:1, á heimavelli. Leverkusen hafði áður skotist upp í þriðja sæti með því að vinna Freiburg á föstudaginn.

Heimamenn voru tveimur mörkum yfir í hálfleik en markaskorararnir voru Florian Neuhaus og Marcus Thuram. Sebastian Andersson minnkaði muninn fyrir gestina snögglega eftir hlé en Thuram bætti við marki á 59. mínútu og Alassane Pléa innsiglaði stórsigurinn tíu mínútum fyrir leikslok.

Gladbach er með 56 stig, stigi á eftir Dortmund sem á leik til góða gegn Paderborn síðar í dag. Þá er Bayern München á toppnum með 67 stig. Union Berlín er í 14. sæti með 31 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert