Frá Ajax til Mílanó

André Onana er á leið til Ítalíu.
André Onana er á leið til Ítalíu. AFP

Kamerúnski knattspyrnumarkvörðurinn André Onana mun ganga til liðs við ítalska A-deildarfélagið Inter Mílanó í sumar. Það er félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano sem greinir frá þessu.

Onana, sem er 25 ára gamall, er alinn upp hjá Barcelona en hann gekk til liðs við Ajax árið 2015 og lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins árið 2016.

Alls á hann að baki 206 leiki fyrir Ajax í öllum keppnum og þá á hann að baki 20 landsleiki fyrir Kamerún.

Samningur Onana við Ajax rennur út næsta sumar og honum var því frjálst að ræða við önnur lið þegar nýja árið gekk í garð um nýliðna helgi.

Markvörðurinn var úrskurðaður í tólf mánaða keppnisbann í febrúar 2021 fyrir lyfjamisnotkun en bannið var stytt í níu mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert