Sæti í úrslitum í húfi

Hart er tekist á í Unbroken-deildinni í uppgjafarglímu.
Hart er tekist á í Unbroken-deildinni í uppgjafarglímu. Ljósmynd/Ásgeir Marteinsson

Þriðji keppnisdagurinn í Unbroken-deildinni í uppgjafarglímu fer fram á morgun, laugardaginn 11. mars, í Mjölni. 

Um er að ræða síðasta keppnisdaginn í deildarkeppninni og ræðst það því á morgun hverjir komast í úrslit, sem fara fara fram í Tjarnarbíói þann 3. Júní næstkomandi.

Keppt er í nogi uppgjafarglímu og er einungis hægt að sigra með uppgjafartaki. Keppt er í 14 mismunandi flokkum og eru rúmlega 90 keppendur skráðir til leiks.

View this post on Instagram

A post shared by Mjölnir (@mjolnirmma)

151 glíma er á dagskrá á laugardaginn og fara glímurnar fram á fjórum völlum.

Fyrstu glímur hefjast klukkan 11 og verða þær sýndar í beinni útsendingu hér.

Mikil spenna er í deildinni og hefur Mjölnir tekið saman lista yfir mikilvægustu og áhugaverðustu glímurnar í hverjum flokki.

Mótið fer fram í húsnæði Mjölnis, Flugvallarvegi 3, og er frítt inn fyrir áhorfendur.

View this post on Instagram

A post shared by Mjölnir (@mjolnirmma)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert