Ólafía fékk boð á LPGA-mót

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal þáttakenda á Pure Silk …
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal þáttakenda á Pure Silk Championship mótinu. AFP

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal þáttakenda á Pure Silk Championship mótinu í golfi sem fram fer á Williamsburg í Virginíu en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni. Mótið fer fram dagana 23.-26. maí en Ólafía fékk sérstakt boð frá styrktaraðilum um að keppa á mótinu.

Ólafía hefur tekið þátt á sex mótum á Symetra-mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Bandaríkjunum, og verður þetta því hennar fyrsta LPGA-mót á þessu tímabili. Ólafía mun því leika á tveimur LPGA-mótum í röð en hún öðlaðist þáttökurétt á Opna bandaríska meistaramótinu fyrr í sumar en Opna bandaríska fer fram dagana 30. maí til 2. júní. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert