Ragnar markahæstur í dramatískum sigri

Ragnar Jóhannsson átti góðan leik í sigri.
Ragnar Jóhannsson átti góðan leik í sigri. Ljósmynd/Einar Kvalheim

Ragnar Jóhannsson var markahæsti leikmaður Hüttenberg í dramatískum 23:22-heimasigri á Dessauer í þýsku B-deildinni í handbolta í dag. Ragnar lagði upp sigurmarkið á lokasekúndunum og skoraði hann auk þess fimm mörk úr sex skotum. 

Aron Rafn Eðvarðsson átti ágætan leik fyrir Hamburg sem mátti þola 25:31-tap fyrir Grosswallstadt á útivelli. Aron varði tíu skot og spilaði nánast allan leikinn. 

Hüttenberg er í 10. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 18 leiki, en Hamburg er í 14. sæti með 14 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert