Einn starfsmaður eftir hjá síldarbræðslu HB Granda á Akranesi

Tveimur starfsmönnum síldarbræðslunnar hjá HB Granda á Akranesi var sagt upp störfum í dag vegna hagræðingar í rekstri eins og segir í uppsagnarbréfi til starfsmannanna. Fyrir sameiningu störfuðu um 25 manns í síldarbræðslunni. Núna er einungis einn starfsmaður eftir, en það er verksmiðjustjórinn, að því er segir á vef Verkalýðsfélags Akraness.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert