„Tæpt en þetta hafðist“

Valmundur ræðir við ríkissáttasemjara eftir að niðurstöðurnar urðu ljósar í …
Valmundur ræðir við ríkissáttasemjara eftir að niðurstöðurnar urðu ljósar í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar leggjast vel í sig, en sjómenn samþykktu fyrr í kvöld nýjan kjarasamning með 52,4% atkvæða.

„Þetta hafðist. Auðvitað var þetta tæpt en þetta hafðist,“ segir Valmundur í samtali við mbl.is og bætir við að kynningarfundir aðildarfélaganna á samningnum hafi tekist vel.

„Ég held að mönnum hafi snúist hugur þar, miðað við hvernig andinn var þegar við skrifuðum undir. Þegar menn fóru og sáu kynningarnar á samningnum.

Þetta hefði ekki mátt vera mikið tæpara?

„Nei þetta er búið að vera stresskvöld núna. En einföld niðurstaða gildir og nú störfum við samkvæmt samningnum og náum sátt um það. Við komum standandi niður allir og ég held við förum bara að vinna betur saman. Ég held að þetta verkfall hafi kennt okkur það.“

Hvað gerði útslagið?

„Ég held að það sé bara skynsemin, ég held að það sé ekkert annað,“ svarar Valmundur og bætir við að mikil vinna sé fram undan, við að framfylgja samningnum.

Þá segir hann baráttunni um skattaafslátt af fæðispeningum ekki lokið.

„Við finnum einhverja leið til að sjómenn fái eitthvað í staðinn fyrir alla sína löngu fjarveru.“

Eruð þið sátt við aðkomu sjávarútvegsráðherra að þessu máli?

„Ég vil ekkert vera að tala um það núna. Svona er pólitíkin og hún vinnur svona. Auðvitað hefðum viljað sjá að hún hefði sagt já við því sem við vildum. En maður fær ekki allt í lífinu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.267 kg
Skarkoli 2.954 kg
Þorskur 1.655 kg
Ýsa 409 kg
Samtals 8.285 kg
27.7.24 Brattanes NS 123 Handfæri
Ufsi 18 kg
Samtals 18 kg
27.7.24 Ari Óskar ÍS 127 Handfæri
Þorskur 1.416 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 1.427 kg
27.7.24 Digri NS 60 Handfæri
Þorskur 1.640 kg
Samtals 1.640 kg
27.7.24 Stína SH 91 Grásleppunet
Grásleppa 277 kg
Samtals 277 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.267 kg
Skarkoli 2.954 kg
Þorskur 1.655 kg
Ýsa 409 kg
Samtals 8.285 kg
27.7.24 Brattanes NS 123 Handfæri
Ufsi 18 kg
Samtals 18 kg
27.7.24 Ari Óskar ÍS 127 Handfæri
Þorskur 1.416 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 1.427 kg
27.7.24 Digri NS 60 Handfæri
Þorskur 1.640 kg
Samtals 1.640 kg
27.7.24 Stína SH 91 Grásleppunet
Grásleppa 277 kg
Samtals 277 kg

Skoða allar landanir »