Rannsóknarnefnd sjóslysa hefur lokið rannsókn sinni á þeim skipskaða sem varð þegar Jón Hákon fórst við Aðalvík á Hornströndum í júlí 2015. Telur nefndin orsök slyssins hafa verið þá að skipið hafi verið ofhlaðið og með viðvarandi stjórnborðshalla.
Segir í skýrslu nefndarinnar að þetta hafi leitt til þess að í veltingi hafi sjór átt greiða leið inn á þilfar skipsins, bæði yfir lunningu og um lensport.
„Vegna óþéttleika á lestarlúgukarmi bættist stöðugt sjór í lestina. Varð þetta til þess að skipið missti stöðugleika og því hvolfdi þegar öldutoppur rann óhindrað yfir lunningu þess,“ er niðurstaða nefndarinnar.
Stöðugleiki skipsins er sagður hafa verið nokkuð skertur, við það að hleðsla þess hafi verið meiri en sú hámarkshleðsla sem reiknað hafi verið með í stöðugleikabók skipsins.
Skipið hafi tekið sjó inn á þilfarið, líklega skömmu áður en bómunni var slegið út og pokinn hífður um borð.
„Þegar það síðan fær á sig öldur og byrjar að velta þá hníga öll rök að því að þeir vægiskraftar sem við það verka á skipið hafi dugað til að hvolfa því. Að sögn áhafnar þá hafði skipið skyndilega byrjað að velta á meðan þeir voru að taka aflann um borð, tekið tvo skafla af sjó yfir lunninguna inná þilfarið og í framhaldi af því hafi skipinu hvolft,“ segir í skýrslu nefndarinnar.
„Því er líklegast að samspil nokkurra þátta ‐ þ.e. ofhleðslu, sjóvatns á þilfari og líklega í lest einnig ‐ hafi orðið til þess að skipið lagðist, með þeim afleiðingum að skipið fórst. Það má taka það fram að ekki er vitað með vissu hve mikill sjór var í skipinu og allir útreikningar eru bara vangaveltur um hugsanlega atburðarrás að gefnum ákveðnum forsendum.“
Einn skipverji fórst en þremur var bjargað af kili skipsins.
Fréttir mbl.is:
Þremur bjargað af kili skipsins
Reyndu í hálftíma að ná sambandi
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.11.24 | 538,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.11.24 | 560,82 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.11.24 | 347,10 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.11.24 | 257,15 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.11.24 | 197,29 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.11.24 | 282,11 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.11.24 | 231,97 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 22.11.24 | 127,00 kr/kg |
22.11.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.657 kg |
Ýsa | 1.454 kg |
Ufsi | 9 kg |
Hlýri | 4 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 3.126 kg |
22.11.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Ýsa | 132 kg |
Þorskur | 123 kg |
Keila | 27 kg |
Ufsi | 13 kg |
Steinbítur | 7 kg |
Samtals | 302 kg |
22.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Þorskur | 382 kg |
Ýsa | 259 kg |
Samtals | 641 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.11.24 | 538,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.11.24 | 560,82 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.11.24 | 347,10 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.11.24 | 257,15 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.11.24 | 197,29 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.11.24 | 282,11 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.11.24 | 231,97 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 22.11.24 | 127,00 kr/kg |
22.11.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.657 kg |
Ýsa | 1.454 kg |
Ufsi | 9 kg |
Hlýri | 4 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 3.126 kg |
22.11.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Ýsa | 132 kg |
Þorskur | 123 kg |
Keila | 27 kg |
Ufsi | 13 kg |
Steinbítur | 7 kg |
Samtals | 302 kg |
22.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Þorskur | 382 kg |
Ýsa | 259 kg |
Samtals | 641 kg |