Skaginn 3X selur búnað í Drangey

Samningnum fagnað á sjávarútvegssýningunni í Brussel. Frá vinstri eru Jón …
Samningnum fagnað á sjávarútvegssýningunni í Brussel. Frá vinstri eru Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri Fisk Seafood, Erla Jónsdóttir fjármálastjóri fyrirtækisins, Laufey Skúladóttir, markaðs- og sölustjóri, Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri og loks Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans 3X.

Undirritaður hefur verið samningur á milli Skagans 3X og Fisk Seafood á Sauðárkróki um kaup Fisk Seafood á vinnslu- og lestarbúnaði fyrir nýsmíði fyrirtækisins, Drangey SK-2, sem sjósett var í Tyrklandi í síðustu viku. Skipið er væntanlegt til landsins síðla sumars.

Vinnslubúnaðurinn byggir á svonefndri „Sub-chilling“ tækni sem Skaginn 3X hefur þróað undanfarin misseri, meðal annars í samstarfi við Fisk Seafood, en fyrsti búnaðurinn af þeim toga var settur um borð í Málmey SK1 fyrir rúmum tveimur árum síðan.

Tæknin gerir notkun íss við geymslu fersks fisks óþarfa með tilheyrandi lækkun kostnaðar við veiðar og vinnslu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Skaganum 3X.

„Þá verður einnig sett um borð í Drangey sjálfvirk færsla á kerum niður í lest af svipuðum toga og nú hefur verið komið fyrir um borð í Engey RE91, sem leysir af hólmi erfið og um margt hættuleg störf sjómanna. Saman tryggja kerfin samfellu í meðhöndlun afla um borð, aukin afköst við veiðar og gefa auk þess möguleika á rekjanleika afla frá veiðum til neyslu,“ segir í tilkynningunni.

Drangey SK-2 var hleypt af stokkunum í skipasmíðastöðinni Cemre í …
Drangey SK-2 var hleypt af stokkunum í skipasmíðastöðinni Cemre í Tyrklandi á laugardagsmorgun. Ljósmynd/Jón Ingi Sigurðsson

Samstarfið skilað miklum árangri

Haft er eftir Jóni Eðvaldi Friðrikssyni, framkvæmdastjóra Fisk Seafood, að búnaðurinn hafi reynst mjög vel.

„Væntingar um aukin gæði afla með þessari nýju aðferð hafa staðist og því voru kaupin á búnaði fyrir Drangey rökrétt framhald,” segir hann.

Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans 3X, segir þá samninginn við Fisk Seafood afar ánægjulegan í ljósi þess að um aðra sölu slíks búnaðar sé að ræða milli fyrirtækjanna.

„Betri viðurkenningu geta framleiðendur ekki fengið en ánægðan viðskiptavin sem kemur aftur. Þróunarsamstarf fyrirtækjanna hefur skilað miklum árangri og þessi samningur staðfestir það,” segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »