Þorsteinn Pálsson leiðir sjávarútvegsnefnd

Þorsteinn Pálsson.
Þorsteinn Pálsson. mbl.is/RAX

Gengið hefur verið frá skipan nefndar til að móta tillögur um hvernig tryggja megi sanngjarna gjaldtöku fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni. Formaður nefndarinnar er Þorsteinn Pálsson sem skipaður er af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 

Þorsteinn gegndi embætti sjávarútvegsráðherra í átta ár frá 1991-1999. Nefndin er að öðru leyti skipuð samkvæmt tilnefningum allra stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi. Nefndin skal skila tillögum sínum til ráðherra í formi lagafrumvarps eigi síðar en 1. desember 2017.

Í nefndinni eru Hanna Katrín Friðriksson, fyrir Viðreisn,  Logi Einarsson, fyrir Samfylkingu, Mörður Ingólfsson, fyrir Pírata, Páll Pálsson, fyrir Framsóknarflokk, Svandís Svavarsdóttir, fyrir VG, Teitur Björn Einarsson, fyrir Sjálfstæðisflokk, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, fyrir Bjarta framtíð og Þorsteinn Pálsson, sem er formaður líkt og áður segir.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að unnið verði að mati á þeim kostum sem tækir eru til gjaldtöku fyrir afnot sjávarauðlindarinnar, svo sem markaðstengingu, sérstöku afkomutengdu gjaldi eða öðrum leiðum, í því skyni m.a. að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind verði í eðlilegu hlutfalli við afrakstur veiðanna.

Í fréttatilkynningu segir að markmiðið sé að tillögur nefndarinnar geti orðið grundvöllur að þverpólitískri og víðtækri sátt í samfélaginu um sjávarútveginn og þar með grunnur að auknum stöðugleika í starfsumhverfi hans og tengdra greina til framtíðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.1.25 530,04 kr/kg
Þorskur, slægður 10.1.25 666,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.1.25 309,96 kr/kg
Ýsa, slægð 10.1.25 245,17 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.1.25 266,60 kr/kg
Ufsi, slægður 10.1.25 298,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 10.1.25 346,05 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.1.25 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 3.062 kg
Þorskur 1.155 kg
Keila 382 kg
Karfi 8 kg
Hlýri 6 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 4.617 kg
11.1.25 Vigur SF 80 Lína
Þorskur 1.070 kg
Ýsa 75 kg
Langa 68 kg
Keila 42 kg
Samtals 1.255 kg
11.1.25 Sara EA 31 Landbeitt lína
Þorskur 57 kg
Steinbítur 16 kg
Hlýri 4 kg
Keila 2 kg
Ýsa 1 kg
Samtals 80 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.1.25 530,04 kr/kg
Þorskur, slægður 10.1.25 666,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.1.25 309,96 kr/kg
Ýsa, slægð 10.1.25 245,17 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.1.25 266,60 kr/kg
Ufsi, slægður 10.1.25 298,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 10.1.25 346,05 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.1.25 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 3.062 kg
Þorskur 1.155 kg
Keila 382 kg
Karfi 8 kg
Hlýri 6 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 4.617 kg
11.1.25 Vigur SF 80 Lína
Þorskur 1.070 kg
Ýsa 75 kg
Langa 68 kg
Keila 42 kg
Samtals 1.255 kg
11.1.25 Sara EA 31 Landbeitt lína
Þorskur 57 kg
Steinbítur 16 kg
Hlýri 4 kg
Keila 2 kg
Ýsa 1 kg
Samtals 80 kg

Skoða allar landanir »