Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum afhendir Gullbergið VE um miðjan júlí, en skipið var í vetur selt til Noregs. Hugsanlegt er að fyrirtækið kaupi gamla Pál Pálsson ÍS af Hraðfrystihúsinu - Gunnvöru hf. og noti það skip þar til fyrirtækið fær nýtt skip frá Kína, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Í Kína er verið að smíða tvo nýja ísfisktogara fyrir Vinnslustöðina og HG, systurskipin Breka og nýjan Pál Pálsson.
Afhending skipanna hefur dregist, en nú er von á þeim til landsins síðsumars eða í haust. Gamli Páll Pálsson er 45 ára gamalt skip, smíðað í Japan 1972. Verði af því að Vinnslustöðin kaupi skipið yrði það aðeins til að brúa bilið í nokkra mánuði þar til Breki verður kominn í fulla virkni. Samkvæmt upplýsingum blaðsins þykir gamli Páll Pálsson hentugur í það verkefni, en málið er ekki frágengið.
Greint var frá málinu á fréttamiðlinum Bæjarins besta á Ísafirði fyrir helgi og kemur þar fram að innan skamms ljúki 45 ára sögu togarans Páls Pálssonar ÍS í útgerðarsögu Hnífsdals og Ísafjarðar.
„Skipið hefur verið til sölu í tvö ár. Við erum ekki alveg búnir að ganga frá sölu en við vonumst til að það skýrist mjög fljótlega,“ segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf., í samtali við BB.
Fyrirtækið hefur fundað með áhöfn Páls og kynnt henni áformin. Einar Valur segir að gangi salan eftir fari Páll til nýs eiganda um mánaðamótin júní júlí.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.9.24 | 472,91 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.9.24 | 496,66 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.9.24 | 284,47 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.9.24 | 288,17 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.9.24 | 243,50 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.9.24 | 286,20 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.9.24 | 236,50 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 26.9.24 | 252,00 kr/kg |
26.9.24 Beta GK 36 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 5.630 kg |
Ýsa | 2.130 kg |
Steinbítur | 227 kg |
Keila | 4 kg |
Skarkoli | 2 kg |
Karfi | 1 kg |
Samtals | 7.994 kg |
26.9.24 Valur ST 30 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.834 kg |
Samtals | 1.834 kg |
26.9.24 Hafrún HU 12 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 6.037 kg |
Þorskur | 1.021 kg |
Skarkoli | 28 kg |
Langlúra | 24 kg |
Ufsi | 9 kg |
Steinbítur | 7 kg |
Sandkoli | 2 kg |
Samtals | 7.128 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.9.24 | 472,91 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.9.24 | 496,66 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.9.24 | 284,47 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.9.24 | 288,17 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.9.24 | 243,50 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.9.24 | 286,20 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.9.24 | 236,50 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 26.9.24 | 252,00 kr/kg |
26.9.24 Beta GK 36 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 5.630 kg |
Ýsa | 2.130 kg |
Steinbítur | 227 kg |
Keila | 4 kg |
Skarkoli | 2 kg |
Karfi | 1 kg |
Samtals | 7.994 kg |
26.9.24 Valur ST 30 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.834 kg |
Samtals | 1.834 kg |
26.9.24 Hafrún HU 12 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 6.037 kg |
Þorskur | 1.021 kg |
Skarkoli | 28 kg |
Langlúra | 24 kg |
Ufsi | 9 kg |
Steinbítur | 7 kg |
Sandkoli | 2 kg |
Samtals | 7.128 kg |