Bæta fiskveiðistjórnun utan Evrópu

Frá ströndum Máritaníu. Mynd úr safni.
Frá ströndum Máritaníu. Mynd úr safni. Ljósmynd/Flickr

FarFish-verkefnið, sem ætlað er að stuðla að bættri umgengni evrópska fiskveiðiflotans um hafsvæði utan Evrópu, auka þekkingu á þeim fiskistofnum sem flotinn sækir í á þeim svæðum, greina virðiskeðjurnar sem snúa að afla skipanna og auka þekkingu á fiskveiðistjórnun meðal hagaðila sem að veiðunum koma hefur hlotið fimm milljóna evra styrk. Um þriðjungur styrksins rennur beint til Íslendinga sem vinna að verkefninu sem stýrt er af Matís.

21 fyrirtæki og stofnanir víðsvegar að úr Evrópu, Afríku og S-Ameríku, taka þátt í verkefninu, þar á meðal Matís og Sjávarútvegsskóli háskóla Sameinuðu þjóðanna (e. United Nations University Fisheries Training Program/UNU-FTP), sem staðsettur er hér á Íslandi. Verkefnið er styrkt af Horizon 2020 rannsóknaráætlun Evrópu.

,,Um 20 prósent af afla evrópska fiskveiðiflotans er fenginn utan evrópskra hafsvæða. Þessi afli er meðal annars fenginn á alþjóðlegum hafsvæðum og innan lögsögu strandríkja þar sem samningar hafa verið gerðir um aðgengi evrópska flotans,“ segir Jónas Rúnar Viðarsson hjá Matís en hann er verkefnastjóri verkefnisins.

„Samningar við strandríki eru með nokkrum hætti, og það sem snýr að þessu verkefni beint er annars vegar sérsamningar milli einstakra útgerða og yfirvalda á hverju svæði fyrir sig og hins vegar samningar sem Evrópusambandið gerir við einstök ríki gegn vilyrði um fjárhagslega styrki til innviðauppbyggingar í sjávarútvegi á þeim slóðum. Þessir samningarhafa verið nokkuð umdeildir, þar sem Evrópusambandið og evrópski flotinn hefur meðal annars verið sakaður um að fara ránshendi um auðlindir fátækra ríkja, sér í lagi við vesturströnd Afríku,“ segir Jónas.

„ Til að bregðast við þessari gagnrýni hefur Horizon 2020 rannsóknaáætlunin ákveðið að styrkja rannsókna- og þróunarstarf sem stuðla á að úrbótum á þessu sviði; þar kemur FarFish verkefnið til sögunar.“

Athyglinni beint að sex hafsvæðum

Í FarFish verkefninu verður athyglinni beint að sex hafsvæðum, það er innan lögsagna Grænhöfðaeyja, Máritaníu, Senegal og Seychelleseyja, sem og alþjóðlegra hafsvæða í suðaustur- og suðvestur Atlantshafi. Safnað verður saman upplýsingum um líffræðilega, vistfræðilega, efnahagslega og félagslega mikilvæga þætti veiðanna og þær upplýsingar gerðar aðgengilegar; fiskveiðistjórnun innan svæðanna verða greind í þaula og komið fram með tillögur að úrbótum; leitast verður við að auka ábyrgð evrópska flotans þegar kemur að nýtingu og upplýsingagjöf; og byggð verður upp þekking á grundvallaratriðum fiskveiðistjórnunar meðal hagaðila í strandríkjunum og innanevrópska fiskveiðiflotans.

„Ljóst er að hér er um gífurlega mikilvægt málefni að ræða og að ekki er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Þó er einnig mikilvægt að hafa í huga að takist verkefninu að stuðla að einhverskonar framförum í þessum flóknu og oft á tíðum nær stjórnlausu veiðum, þá mun það geta haft úrslitaáhrif á viðgang mikilvægra fiskistofna og lífsviðurværi fjölda manna, jafnt í strandríkjunum landa utan Evrópu sem og í Evrópu,“ segir í fréttatilkynningu frá Matís.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.12.24 534,99 kr/kg
Þorskur, slægður 20.12.24 714,42 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.12.24 303,74 kr/kg
Ýsa, slægð 20.12.24 187,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.12.24 10,95 kr/kg
Ufsi, slægður 20.12.24 112,85 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 20.12.24 67,60 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.12.24 Guðmundur í Nesi RE 13 Botnvarpa
Karfi 189.310 kg
Þorskur 103.686 kg
Grálúða 54.139 kg
Gulllax 9.379 kg
Blálanga 7.603 kg
Ufsi 2.610 kg
Hlýri 1.608 kg
Steinbítur 1.339 kg
Ýsa 605 kg
Langa 334 kg
Arnarfjarðarskel 207 kg
Keila 76 kg
Kolmunni 26 kg
Samtals 370.922 kg
20.12.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 298 kg
Þorskur 175 kg
Karfi 161 kg
Ýsa 52 kg
Ufsi 8 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 696 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.12.24 534,99 kr/kg
Þorskur, slægður 20.12.24 714,42 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.12.24 303,74 kr/kg
Ýsa, slægð 20.12.24 187,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.12.24 10,95 kr/kg
Ufsi, slægður 20.12.24 112,85 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 18.12.24 42,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 20.12.24 67,60 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.12.24 Guðmundur í Nesi RE 13 Botnvarpa
Karfi 189.310 kg
Þorskur 103.686 kg
Grálúða 54.139 kg
Gulllax 9.379 kg
Blálanga 7.603 kg
Ufsi 2.610 kg
Hlýri 1.608 kg
Steinbítur 1.339 kg
Ýsa 605 kg
Langa 334 kg
Arnarfjarðarskel 207 kg
Keila 76 kg
Kolmunni 26 kg
Samtals 370.922 kg
20.12.24 Kristján HF 100 Lína
Keila 298 kg
Þorskur 175 kg
Karfi 161 kg
Ýsa 52 kg
Ufsi 8 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 696 kg

Skoða allar landanir »