Fundu skipsflak á botni Breiðafjarðar

Sjá má hvernig flakið teiknast upp í þrívídd í úrvinnsluforritum …
Sjá má hvernig flakið teiknast upp í þrívídd í úrvinnsluforritum sjómælingasviðs, eftir að unnið hefur verið úr gögnum Baldurs. Tölvuteikning/Landhelgisgæslan

Sjómælingabáturinn Baldur hefur fundið flak norska flutningaskipsins Nordpolen, sunnan Brjánslækjar í Breiðafirði. Skipið strandaði og sökk í júlí 1926 en um borð voru símastaurar og sement, auk símavírs úr kopar.

Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar.

Segir þar að Baldur hafi verið við mælingar á svæði sunnan Brjánslækjar í byrjun sumars, vegna fyrirhugaðrar útgáfu nýrra sjókorta af Breiðafirði. Var fjölgeislamælir notaður til að endurmæla svæðið með nákvæmum hætti, en eldri mælingar voru eingeislamælingar frá fjórða áratug síðustu aldar.

Við mælingarnar mátti sjá ílanga þúst á tólf metra dýpi, sem gat verið skipsflak, en þústin reyndist vera um áttatíu metra löng.

Morgunblaðið greindi frá atvikinu tveimur dögum síðar.
Morgunblaðið greindi frá atvikinu tveimur dögum síðar. Skjáskot/Timarit.is

Kafarar Gæslunnar komu á vettvang

„Á fjöruliggjanda daginn eftir var ákveðið að slaka GoPro-myndavélum niður að þústinni til að sannreyna hvað þarna væri. Var útfallsstraumurinn látinn bera Baldur yfir þústina og náðust þannig myndir sem staðfestu að um flak væri að ræða þótt ekki væri hægt að ráða af þeim að það væri af Nordpolen,“ segir á vef Gæslunnar.

Kafarar úr sprengjueyðingar- og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar komu á vettvang næsta dag og köfuðu niður að flakinu til að kanna það betur, ásamt köfurum úr varðskipinu Þór sem var við eftirlit á svæðinu.

Staðfestu kafararnir að þarna lægi Nordpolen. Hefur Minjastofnun verið tilkynnt um málið.

Í umfjöllun Morgunblaðsins 31. júlí 1926 segir að skipið hafi verið á stærð við flutningaskipið Gullfoss og verið 46 ára gamalt, eða frá árinu 1880. Skipverjarnir hafi komið til Flateyjar og sagt farir sínar ekki sléttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.9.24 472,91 kr/kg
Þorskur, slægður 26.9.24 496,66 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.9.24 284,47 kr/kg
Ýsa, slægð 26.9.24 288,17 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.9.24 243,50 kr/kg
Ufsi, slægður 26.9.24 286,20 kr/kg
Djúpkarfi 20.9.24 301,00 kr/kg
Gullkarfi 26.9.24 236,50 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 26.9.24 252,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.9.24 Beta GK 36 Línutrekt
Þorskur 5.630 kg
Ýsa 2.130 kg
Steinbítur 227 kg
Keila 4 kg
Skarkoli 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 7.994 kg
26.9.24 Valur ST 30 Handfæri
Þorskur 1.834 kg
Samtals 1.834 kg
26.9.24 Hafrún HU 12 Dragnót
Ýsa 6.037 kg
Þorskur 1.021 kg
Skarkoli 28 kg
Langlúra 24 kg
Ufsi 9 kg
Steinbítur 7 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 7.128 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.9.24 472,91 kr/kg
Þorskur, slægður 26.9.24 496,66 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.9.24 284,47 kr/kg
Ýsa, slægð 26.9.24 288,17 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.9.24 243,50 kr/kg
Ufsi, slægður 26.9.24 286,20 kr/kg
Djúpkarfi 20.9.24 301,00 kr/kg
Gullkarfi 26.9.24 236,50 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 26.9.24 252,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.9.24 Beta GK 36 Línutrekt
Þorskur 5.630 kg
Ýsa 2.130 kg
Steinbítur 227 kg
Keila 4 kg
Skarkoli 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 7.994 kg
26.9.24 Valur ST 30 Handfæri
Þorskur 1.834 kg
Samtals 1.834 kg
26.9.24 Hafrún HU 12 Dragnót
Ýsa 6.037 kg
Þorskur 1.021 kg
Skarkoli 28 kg
Langlúra 24 kg
Ufsi 9 kg
Steinbítur 7 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 7.128 kg

Skoða allar landanir »