Gullver ekki veitt betur í tuttugu ár

Gullver NS við bryggju á Seyðisfirði.
Gullver NS við bryggju á Seyðisfirði. Ljósmynd/Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS hefur verið að gera það gott að undanförnu en í nýliðnum októbermánuði var afli skipsins um 730 tonn í sjö löndunum á Seyðisfirði. Uppistaða aflans var þorskur en einnig var lögð töluverð áhersla á að veiða ýsu og karfa.

„Síðasti mánuður var mjög góður hjá okkur og tíðin var afskaplega hagstæð. Aflabrögð voru góð og aflinn fékkst að mestu á okkar hefðbundnu miðum. Þorskurinn var veiddur á Breiðdalsgrunni og Litladýpinu, ýsan að drjúgum hluta á Gerpisflaki og Tangaflaki og karfinn fékkst einkum í Berufjarðarál,“ er haft eftir Þórhalli Jónssyni skipstjóra Gullvers á vef Síldarvinnslunnar.

Rætt var við Þórhall í morgun en þá var skipið statt við Litladýpi austan við Breiðdalsgrunn.

Meiri kvóti lykillinn að árangri

„Það hefur verið betri veiði á þessum miðum en undanfarin haust. Lykillinn að þessum góða árangri er meiri kvóti en við höfum haft til ráðstöfunar áður. Við getum veitt af krafti og stopp á milli túra eru styttri en áður. Venjulega tökum við þrjá túra og síðan er stoppað í um tvo sólarhringa. Þetta hefur gengið vel og menn eru mjög ánægðir með þetta fyrirkomulag,“ segir Þórhallur. 

Haft er eftir Adolf Guðmundssyni rekstrarstjóra á Seyðisfirði að líklega séu liðin um 20 ár frá því að Gullver skilaði á land jafn miklum afla í einum mánuði. Útgerðin gangi vel og þess sé ávallt gætt að fiskvinnslustöðin á Seyðisfirði hafi nægt hráefni til vinnslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »