Gáfu ungbarnavogir með eilífðarábyrgð

Á Akranesi var vogin strax tekin í notkun og það …
Á Akranesi var vogin strax tekin í notkun og það var hin tveggja daga gamla Eldey Hrafntinna Éiru Sigurbjörnsdóttir sem fyrst var vigtuð. Ljósmynd/Marel

Marel hefur fært nokkrum fæðingardeildum hér á landi ungbarnavogir að gjöf í aðdraganda jólanna. Hefur fyrirtækið haft þennan háttinn á undanfarin ár, að gefa veglegar gjafir í þágu samfélagsins frekar en hefðbundin jólakort og -gjafir á aðventunni.

Fram kemur á vef fyrirtækisins að í lok október hafi fulltrúar þess heimsótt kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi og fæðingar- og vökudeildir LSH í Reykjavík. Fengu deildirnar alls fjórar ungbarnavogir að gjöf en einnig er stefnt að því að fæðingarheimilið Björkin fái vog.

„Við erum Snæfellingar og hugsum hlýtt til fæðingardeildarinnar hér á …
„Við erum Snæfellingar og hugsum hlýtt til fæðingardeildarinnar hér á Akranesi,“ sögðu þeir Þórarinn og Valdimar við afhendingu gjafarinnar. Anna Björnsdóttir, deildarstjóri kvennadeildar HVE, veitti gjöfinni viðtöku en með þeim á myndinni eru Elísabet Harles ljósmóðir, Lára Dóra Oddsdóttir ljósmóðir, Katharina Schumacher, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir, og Rósa Marinósdóttir, hjúkrunarfræðingur og sviðsstjóri hjúkrunar á heilsugæslusviði. Ljósmynd/Marel

Mæla með tveggja gramma nákvæmni

Vogirnar mæla þyngd með tveggja gramma nákvæmni og þeim fylgir eilífðarábyrgð. Á þeim er sömuleiðis mælistika svo hægt er að mæla lengd barnanna samhliða vigtun. Hugbúnaður vogarinnar gerir enn fremur ráð fyrir hreyfingu og því kemur ekki að sök þó börnin kunni að hreyfa sig á meðan þau eru vigtuð.

Á Akranesi var vogin strax tekin í notkun og það var hin tveggja daga gamla Eldey Hrafntinna Éiru Sigurbjörnsdóttir sem fyrst var vigtuð. Snæfellingarnir Valdimar Gunnar Sigurðsson, alþjóðlegur sölustjóri Marel, og Þórarinn Kristjánsson, sölustjóri Marel á Íslandi, afhentu vogina á Akranesi fyrir hönd fyrirtækisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »