Björgunarliðar eru á leið á vettvang þar sem bátur strandaði í námunda við Stykkishólm. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá farþegabáti kl. 14:15 í dag, sem hafði steytt á skeri á Breiðafirði, um 3 km austur af Stykkishólmi.
Samkvæmt upplýsingum standa aðgerðir yfir, en níu manns voru um borð í bátnum og er einn sagður slasaður. Fiskibátarnir Arna og Blíða, auk farþegaskipsins Særúnar, eru á leið á staðinn. Léttbátur frá Særúnu býr sig undir að taka farþegana um borð.
Berserkir, björgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar, hefur verið kölluð út á fyrsta forgangi. TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, heldur á vettvang eins fljótt og auðið er en hún er nýbúin að flytja fólk til Reykjavíkur frá slysstaðnum við Kirkjubæjarklaustur þar sem rúta valt fyrr í dag.
Uppfært kl. 15.10:
Samkvæmt upplýsingum frá Þórði Þórðarsyni, varðstjóra lögreglunnar í Stykkishólmi, er um að ræða farþegabátinn Austra SH.
Nú rétt fyrir kl. 15 var búið að bjarga öllum farþegum um borð í Særúnu. Farið verður með fólkið í Stykkishólm þar sem það fær aðhlynningu. Samkvæmt upplýsingum frá Sveini H. Guðmarssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, er sá slasaði ekki talinn alvarlega slasaður. Farþegabáturinn mun enn vera fastur á skerinu.
Þegar ljóst var að öllum farþegum var borgið var TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, kölluð aftur til Reykjavíkur.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.7.24 | 471,71 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.7.24 | 396,54 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.7.24 | 366,25 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.7.24 | 235,69 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.7.24 | 246,94 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.7.24 | 223,45 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 22.7.24 | 607,72 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.403 kg |
Langa | 535 kg |
Ýsa | 442 kg |
Keila | 336 kg |
Steinbítur | 155 kg |
Karfi | 109 kg |
Hlýri | 62 kg |
Samtals | 7.042 kg |
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 3.160 kg |
Þorskur | 1.817 kg |
Skarkoli | 867 kg |
Skrápflúra | 307 kg |
Sandkoli | 48 kg |
Steinbítur | 31 kg |
Þykkvalúra | 9 kg |
Karfi | 6 kg |
Ufsi | 5 kg |
Langlúra | 3 kg |
Samtals | 6.253 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.7.24 | 471,71 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.7.24 | 396,54 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.7.24 | 366,25 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.7.24 | 235,69 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.7.24 | 246,94 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.7.24 | 223,45 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 22.7.24 | 607,72 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.403 kg |
Langa | 535 kg |
Ýsa | 442 kg |
Keila | 336 kg |
Steinbítur | 155 kg |
Karfi | 109 kg |
Hlýri | 62 kg |
Samtals | 7.042 kg |
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 3.160 kg |
Þorskur | 1.817 kg |
Skarkoli | 867 kg |
Skrápflúra | 307 kg |
Sandkoli | 48 kg |
Steinbítur | 31 kg |
Þykkvalúra | 9 kg |
Karfi | 6 kg |
Ufsi | 5 kg |
Langlúra | 3 kg |
Samtals | 6.253 kg |