„Enginn ís sjáanlegur um borð“

Þorskur á landi. Mynd úr safni.
Þorskur á landi. Mynd úr safni. mbl.is/Hari

Í hitastigsmælingum Matvælastofnunar á lönduðum afla í fyrrasumar mældist hæsti meðalhiti hjá bátum sem lönduðu í Þorlákshöfn (5,6°C) og á Siglufirði (4,2°C). Þar sem hitastig mældist hátt var algeng athugasemd eftirlitsmanna: „Enginn ís sjáanlegur um borð“ eða „mjög lítið af sjáanlegum ís í kari“, segir í frétt á heimasíðu Matvælastofnunar. Í reglugerð er hnykkt á því að kæla skuli afla eins fljótt og auðið er eftir að hann kemur um borð og skipstjórnandi skal geta sýnt fram á að hafa tekið nægan ís til veiðiferðarinnar.

Á tímabilinu frá maí til ágúst 2017 voru teknar hitastigsmælingar á lönduðum afla. Alls voru þetta 140 mælingar sem teknar voru víðs vegar um landið. Um 90% bátanna voru á strandveiðum og tæp 88% mælinga voru af strandveiðibátum.

Kaldari með krapa

Meðalhitastig afla var 2,8 °C, þar af voru 40% hitastigsmælinga lægri eða jafnt og 2 °C, sem er viðmið fyrir hitastig bráðnandi íss, segir á heimasíðu MAST. Við samanburð á hitastigi í afla má sjá að frá júní og út júlí hækkar meðalhiti afla sem kældur er með ís sem gæti útskýrst með hækkuðum sjávarhita en meðalhiti afla sem kældur er með krapa lækkaði hins vegar á sama tímabili.

Skipting milli íss og krapa sem kælimiðils var nokkuð jöfn eða 40% af hitamælingum af afla kældum með ís og 46% með krapa. Meðalhiti þess afla sem kældur var með krapa var 2,1 °C og meðalhiti afla sem kældur var með ís var 3,6 °C.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.1.25 608,58 kr/kg
Þorskur, slægður 21.1.25 681,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.1.25 383,32 kr/kg
Ýsa, slægð 21.1.25 301,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.1.25 261,00 kr/kg
Ufsi, slægður 21.1.25 302,81 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 21.1.25 332,43 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.1.25 Stormur ST 69 Landbeitt lína
Þorskur 1.524 kg
Ýsa 886 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 2.412 kg
21.1.25 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.944 kg
Steinbítur 1.881 kg
Þorskur 1.619 kg
Samtals 8.444 kg
21.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 939 kg
Þorskur 244 kg
Ýsa 205 kg
Langa 118 kg
Hlýri 29 kg
Keila 25 kg
Ufsi 19 kg
Skarkoli 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.582 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.1.25 608,58 kr/kg
Þorskur, slægður 21.1.25 681,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.1.25 383,32 kr/kg
Ýsa, slægð 21.1.25 301,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.1.25 261,00 kr/kg
Ufsi, slægður 21.1.25 302,81 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 21.1.25 332,43 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.1.25 Stormur ST 69 Landbeitt lína
Þorskur 1.524 kg
Ýsa 886 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 2.412 kg
21.1.25 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 4.944 kg
Steinbítur 1.881 kg
Þorskur 1.619 kg
Samtals 8.444 kg
21.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 939 kg
Þorskur 244 kg
Ýsa 205 kg
Langa 118 kg
Hlýri 29 kg
Keila 25 kg
Ufsi 19 kg
Skarkoli 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.582 kg

Skoða allar landanir »