„Við höfum aldrei skipt okkur af neinu í öðrum félögum, og mér finnst það vera einkamál hvers félags fyrir sig hvernig menn hátta sínum málum,“ segir Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, spurður hvort hann taki mark á gagnrýni formanna VR, Eflingar, Framsýnar og VLFA.
„En hluti af þessu er náttúrulega sá, að ef sameiningin hefði gengið eftir þá hefðu hin félögin fjögur sagt sig með því úr Alþýðusambandinu. Því má ekki gleyma,“ bætir hann við og vísar þar til sameiningarviðræðna félagsins við Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjómannafélag Hafnarfjarðar og Sjómannafélagið Jötun.
Sjómannafélagið Jötunn tilkynnti síðdegis í dag að ásakanir Heiðveigar Maríu Einarsdóttur í garð stjórnar Sjómannafélags Íslands hefðu ekki verið einar og sér ástæða þess að viðræðum um sameiningu félaganna var slitið.
Spurður hvort hann kannist við aðrar þær ástæður, sem Sjómannafélagið Jötunn bendir á að hafi verið til staðar, svarar Jónas neitandi.
„Það hefur þá eitthvað breyst, því í tilkynningunni um viðræðuslitin sem félögin sendu okkur voru aðeins nefndar þessar ávirðingar Heiðveigar,“ segir Jónas. „Við höfum bara þessa einu tilkynningu frá þeim og vitum í raun ekki meir. Nú er ég hreinlega hættur að botna neitt í þessu.“
Kolbrún Garðarsdóttir, lögmaður Heiðveigar, sagði í samtali við 200 mílur í gær að farið yrði með mál hennar fyrir Félagsdóm. „Þetta er einfaldlega kolólöglegt, og það er ljóst að þeir hafa ekki unnið sína undirbúningsvinnu nógu vel,“ sagði hún.
„Þá hlýtur málið bara að fara í þann farveg. Þær ætla að draga okkur fyrir dóm og þá gerist það náttúrulega bara. Það hlýtur að vera leiðin til að fara, ef það er allt ólöglegt sem við gerum.“
Jónas segir að kosið verði um næsta formann félagsins nú í nóvember, en áður hefur hann sagst ekki munu bjóða sig fram að nýju.
200 mílur greindu frá því síðdegis í dag að vel á annað hundrað manns hefðu skrifað undir lista þar sem þess er krafist að stjórn Sjómannafélagsins boði til félagsfundar innan næsta sólarhrings. Aðspurður segist Jónas ekki kannast við þá kröfu.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 31.1.25 | 497,52 kr/kg |
Þorskur, slægður | 31.1.25 | 652,47 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 31.1.25 | 447,15 kr/kg |
Ýsa, slægð | 31.1.25 | 330,59 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 31.1.25 | 261,54 kr/kg |
Ufsi, slægður | 31.1.25 | 302,66 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 31.1.25 | 206,24 kr/kg |
1.2.25 Háey I ÞH 295 Lína | |
---|---|
Þorskur | 563 kg |
Ýsa | 278 kg |
Keila | 178 kg |
Hlýri | 175 kg |
Ufsi | 29 kg |
Steinbítur | 20 kg |
Karfi | 3 kg |
Samtals | 1.246 kg |
1.2.25 Sigurbjörg VE 67 Botnvarpa | |
---|---|
Hlýri | 483 kg |
Karfi | 303 kg |
Grálúða | 4 kg |
Ufsi | 3 kg |
Grásleppa | 3 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 798 kg |
31.1.25 Kristrún RE 177 Grálúðunet | |
---|---|
Grálúða | 439 kg |
Samtals | 439 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 31.1.25 | 497,52 kr/kg |
Þorskur, slægður | 31.1.25 | 652,47 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 31.1.25 | 447,15 kr/kg |
Ýsa, slægð | 31.1.25 | 330,59 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 31.1.25 | 261,54 kr/kg |
Ufsi, slægður | 31.1.25 | 302,66 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 31.1.25 | 206,24 kr/kg |
1.2.25 Háey I ÞH 295 Lína | |
---|---|
Þorskur | 563 kg |
Ýsa | 278 kg |
Keila | 178 kg |
Hlýri | 175 kg |
Ufsi | 29 kg |
Steinbítur | 20 kg |
Karfi | 3 kg |
Samtals | 1.246 kg |
1.2.25 Sigurbjörg VE 67 Botnvarpa | |
---|---|
Hlýri | 483 kg |
Karfi | 303 kg |
Grálúða | 4 kg |
Ufsi | 3 kg |
Grásleppa | 3 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 798 kg |
31.1.25 Kristrún RE 177 Grálúðunet | |
---|---|
Grálúða | 439 kg |
Samtals | 439 kg |