„Lögmaður félagsins fer með rangt mál“

Heiðveigu Maríu Einarsdóttur var vikið úr Sjómannafélaginu á dögunum. Sjómannafélagið …
Heiðveigu Maríu Einarsdóttur var vikið úr Sjómannafélaginu á dögunum. Sjómannafélagið hafnaði flýtimeðferð í máli hennar gegn þeim fyrir Félagsdómi. mbl.is/Eggert

Sjómannafélag Íslands gerði í dag þá kröfu að Heiðveig María Einarsdóttir legði fram málskostnaðartryggingu vegna stefnu hennar gegn þeim fyrir Félagsdómi. Hún segir þetta gert með skírskotun til hennar persónulegu fjármála.

Í Facebook-færslu segir hún að þessi krafa sé rökstudd af félaginu þannig að hún sé „á vanskilaskrá vegna ágreinings vegna uppgjörs á stökkbreytu fasteignaláni síðan í hruninu.“ Á þeim forsendum krefji þeir hana um þessa tryggingu.

Málskostnaðartrygging er krafa um að stefnandi, Heiðveig, geti sannað að hún geti greitt málskostnaðinn af öllu málinu á endanum. Þannig að tapi hún málinu og verði dæmd til að greiða málskostnað hins stefnda, Sjómannafélagsins, þá vilja þeir að hún sýni fram á að hún sé fær um það.

„Lögmaður félagsins fer með rangt mál“

Mbl.is hafði samband við Heiðveigu. Hún vill meina að Sjómannafélagið sé áfram að tefja málið. Framboðsfrestur rennur út á mánudaginn og kosning hefst 24. nóvember, ef tveir listar eru fyrir hendi, samkvæmt lögunum.

Heiðveig sér ekki annað en að verið sé að reyna að koma í veg fyrir að annað framboð komi fram, hvort sem er frá henni eða öðrum. „Þeir höfnuðu flýtimeðferð málsins fyrir Félagsdómi alfarið,“ bendir hún á.   

Ef Heiðveig er ekki í félaginu, fær hún ekki að leggja fram framboðslista í komandi stjórnarkjör á mánudaginn en þá rennur sá frestur út. Í samtali við Stöð 2 í kvöld sagði Jónas Haraldsson lögmaður félagsins um þetta, að „kosningar skulu hefjast 24. nóvember, sama hvort sem það er einn listi eða tveir eða fleiri.“

„Þar fer lögmaður félagins með rangt máln“ segir Heiðveig. Það verði ekki kosningar ef annar listi fær ekki að bjóða fram. Hún vísar til laga félagsins er lúta að þessu en þar segir: „ef aðeins einn framboðslisti hefur borist til stjórnar, trúnaðarmannaráðs og matsveinadeildar eru þeir menn sem þar eru tilnefndir sjálfkjörnir stjórn.“

Heiðveig leggur loks áherslu á að hún telji mjög óeðlilegt að trúnaðarmannaráð auglýsi eftir framboðum en kynni ekki sinn eigin lista um leið. „Að safna 100 undirskriftum frá sjómönnum úti á sjó fyrir framboði er nokkuð sem þarf fyrirvara fyrir,“ segir hún. „Að stjórnin skuli ekki tilkynna sitt eigið framboð sýnir hvað þeir túlka lög félagsins bara eftir eigin hag.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.1.25 585,36 kr/kg
Þorskur, slægður 22.1.25 698,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.1.25 468,39 kr/kg
Ýsa, slægð 22.1.25 380,87 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.1.25 280,78 kr/kg
Ufsi, slægður 22.1.25 323,86 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 22.1.25 254,20 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.1.25 Grímsey ST 2 Dragnót
Þorskur 2.201 kg
Ýsa 912 kg
Skrápflúra 302 kg
Skarkoli 48 kg
Langlúra 20 kg
Samtals 3.483 kg
22.1.25 Skúli ST 35 Línutrekt
Þorskur 3.532 kg
Ýsa 358 kg
Steinbítur 123 kg
Samtals 4.013 kg
22.1.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 4.946 kg
Ýsa 664 kg
Hlýri 308 kg
Karfi 133 kg
Steinbítur 77 kg
Samtals 6.128 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.1.25 585,36 kr/kg
Þorskur, slægður 22.1.25 698,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.1.25 468,39 kr/kg
Ýsa, slægð 22.1.25 380,87 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.1.25 280,78 kr/kg
Ufsi, slægður 22.1.25 323,86 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 22.1.25 254,20 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.1.25 Grímsey ST 2 Dragnót
Þorskur 2.201 kg
Ýsa 912 kg
Skrápflúra 302 kg
Skarkoli 48 kg
Langlúra 20 kg
Samtals 3.483 kg
22.1.25 Skúli ST 35 Línutrekt
Þorskur 3.532 kg
Ýsa 358 kg
Steinbítur 123 kg
Samtals 4.013 kg
22.1.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 4.946 kg
Ýsa 664 kg
Hlýri 308 kg
Karfi 133 kg
Steinbítur 77 kg
Samtals 6.128 kg

Skoða allar landanir »