Fór ítrekað yfir leyfilegt farsvið sitt

Eftirlitsmenn varðskipsins Þórs fóru í sérstaka eftirlitsferð í dag og …
Eftirlitsmenn varðskipsins Þórs fóru í sérstaka eftirlitsferð í dag og fylgdust með farþegabátum í grennd við Reykjavík í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson

Undanfarið hefur borið á því að skipstjórar farþegaskipa hafi ekki virt leyfilegt farsvið sitt og hefur Landhelgisgæslan þurft að áminna og kæra skipstjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu Landhelgisgæslunnar, en þar kemur fram að varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi um helgina haft afskipti af farþegabáti sem hafði farið út fyrir leyfilegt farsvið sitt.

Skipstjórinn var áminntur og beðinn um að halda sig innan þeirra marka sem tilgreind eru reglugerð um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum. Degi síðar var sami bátur aftur kominn út fyrir farsviðið.

Á mánudag endurtók skipstjóri þessa sama báts leikinn í þriðja sinn og fór út fyrir leyfilegt farsvið. Landhelgisgæslan kallaði út séraðgerðasveit sem tók á móti bátnum þegar hann kom til hafnar í Reykjavík og taldi farþega um borð. Hafði skipstjórinn tjáð Landhelgisgæslunni að tólf farþegar væru í bátnum en við talningu kom í ljós að þeir voru rúmlega tvöfalt fleiri, eða 27 talsins, en máttu aðeins vera tólf. Skipstjórinn á yfir höfði sér kæru fyrir athæfið.

Skiptir viðbragðsaðila miklu að hafa réttar upplýsingar

„Í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar leggja menn metnað sinn í að vakta umferð báta og skipa í öryggisskyni. Því er afar mikilvægt að skipstjórnarmenn virði leyfilegt farsvið og standi rétt að skráningu farþega. Það skiptir viðbragðsaðila miklu máli að vita fjölda farþega um borð ef neyðarástand skapast,“ segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.

Í kjölfar fyrrgreindra atvika ákvað Landhelgisgæslan að senda eftirlitsmenn frá varðskipinu Þór til sérstaks eftirlits með farþegabátum í grennd við Reykjavík í dag. Við þá athugun kom í ljós að einn farþegabátur hafði farið lítillega út fyrir leyfilegt farsvið og var skipstjórinn áminntur í kjölfarið.

Landhelgisgæslan brýnir fyrir skipstjórnarmönnum að virða lög og reglur sem gilda um fjölda farþega og leyfilegt farsvið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.11.24 564,58 kr/kg
Þorskur, slægður 21.11.24 656,67 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.11.24 374,69 kr/kg
Ýsa, slægð 21.11.24 341,33 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.11.24 315,48 kr/kg
Ufsi, slægður 21.11.24 337,30 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 21.11.24 393,63 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 15.11.24 103,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.11.24 Auður Vésteins SU 88 Lína
Ýsa 221 kg
Þorskur 190 kg
Ufsi 44 kg
Steinbítur 15 kg
Keila 7 kg
Samtals 477 kg
21.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Ýsa 180 kg
Þorskur 109 kg
Keila 29 kg
Steinbítur 17 kg
Langa 9 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 349 kg
21.11.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Ýsa 4.050 kg
Þorskur 3.889 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 7.943 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.11.24 564,58 kr/kg
Þorskur, slægður 21.11.24 656,67 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.11.24 374,69 kr/kg
Ýsa, slægð 21.11.24 341,33 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.11.24 315,48 kr/kg
Ufsi, slægður 21.11.24 337,30 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 21.11.24 393,63 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 15.11.24 103,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.11.24 Auður Vésteins SU 88 Lína
Ýsa 221 kg
Þorskur 190 kg
Ufsi 44 kg
Steinbítur 15 kg
Keila 7 kg
Samtals 477 kg
21.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Ýsa 180 kg
Þorskur 109 kg
Keila 29 kg
Steinbítur 17 kg
Langa 9 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 349 kg
21.11.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Ýsa 4.050 kg
Þorskur 3.889 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 7.943 kg

Skoða allar landanir »