Arnar Þór Ingólfsson
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, kallaði eftir því úr ræðustóli Alþingis nú síðdegis að Már Guðmundsson seðlabankastjóri og „hans nánustu samstarfsmenn“ létu þegar af störfum.
Umboðsmaður Alþingis var harðorður á fundi með nefndinni í morgun, er hann ræddi um þá ákvörðun gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands að beita stjórnvaldssektum á hendur Samherja hf. árið 2016, þrátt fyrir að ríkissaksóknari hefði áður komið þeirri afstöðu á framfæri við Seðlabankann, þegar árið 2014, að ekki væru lagaheimildir til staðar fyrir þeim aðgerðum.
Þorsteinn segir að seðlabankastjóra og hans nánustu samstarfsmönnum sé ekki sætt vegna þessa og þess, sem umboðsmaður gagnrýndi einnig, að seðlabankastjóri hefði með ummælum sínum um Samherja-málið látið að því liggja að þrátt fyrir að málið hefði verið látið niður falla væri ekki þar með sagt að rannsóknin hafi verið tilhæfulaus.
„Það er alveg með ólíkindum hvernig seðlabankastjóri og Seðlabankinn hefur farið fram í þessu máli og ég sé ekki annan kost vænlegan fyrir þá sem þarna eiga hlut að máli innan Seðlabankans, en að þeir láti þegar af störfum, það er að segja seðlabankastjóri og hans nánustu samstarfsmenn. Þeim er ekki sætt eftir þessa framgöngu sem að þeir hafa sýnt hér og hafa ekki hlutast á nokkurn mann og ekki orðið við nokkrum ábendingum eða tilmælum,“ sagði þingmaðurinn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.11.24 | 538,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.11.24 | 560,82 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.11.24 | 347,10 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.11.24 | 257,15 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.11.24 | 197,29 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.11.24 | 282,11 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.11.24 | 231,97 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 22.11.24 | 127,00 kr/kg |
22.11.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.657 kg |
Ýsa | 1.454 kg |
Ufsi | 9 kg |
Hlýri | 4 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 3.126 kg |
22.11.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Ýsa | 132 kg |
Þorskur | 123 kg |
Keila | 27 kg |
Ufsi | 13 kg |
Steinbítur | 7 kg |
Samtals | 302 kg |
22.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Þorskur | 382 kg |
Ýsa | 259 kg |
Samtals | 641 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.11.24 | 538,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.11.24 | 560,82 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.11.24 | 347,10 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.11.24 | 257,15 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.11.24 | 197,29 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.11.24 | 282,11 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.11.24 | 231,97 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 22.11.24 | 127,00 kr/kg |
22.11.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.657 kg |
Ýsa | 1.454 kg |
Ufsi | 9 kg |
Hlýri | 4 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 3.126 kg |
22.11.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Ýsa | 132 kg |
Þorskur | 123 kg |
Keila | 27 kg |
Ufsi | 13 kg |
Steinbítur | 7 kg |
Samtals | 302 kg |
22.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Þorskur | 382 kg |
Ýsa | 259 kg |
Samtals | 641 kg |