Stjórn Marel hefur ákveðið að stefna að skráningu hlutabréfa félagsins í kauphöllinni Euronext í Amsterdam, samhliða skráningu í kauphöllinni á Íslandi.
Áður hefur verið greint frá áformum Marel um tvíhliða skráningu en valið stóð á milli Euronext í Amsterdam annars vegar og Nasdaq í Kaupmannahöfn hins vegar.
Aðalfundur félagsins fór fram í höfuðstöðvunum í Garðabæ síðdegis í dag. Í skýrslu stjórnarformanns Marel, Ásthildar Otharsdóttur, kemur fram að markmiðið með tvíhliða skráningu sé að auka seljanleika hlutabréfanna og styðja við frekari vöxt og virðisaukningu fyrir alla hluthafa félagsins.
Skráning hlutabréfa Marel í Kauphöllinni 1992 hafi verið gæfuspor til frekari framþróunar og vaxtar félagsins, en ljóst sé að hlutfallsleg stærð Marel á íslenskum verðbréfamarkaði er umhugsunarefni.
Áform um tvíhliða skráningu hlutabréfa Marel í alþjóðlega kauphöll, til viðbótar við þá íslensku, ganga samkvæmt áætlun að því er segir í skýrslu Árna Odds Þórðarsonar, forstjóra Marel.
„Það er mikilvægt að alþjóðlegt fyrirtæki á borð við Marel hafi alþjóðlegan vettvang til að styðja við frekari vöxt og virðisaukningu. Tvíhliða skráning á alþjóðlegum markaði í erlendum gjaldmiðli gerir hlutabréf félagsins að áhugaverðum kosti sem hluta af kaupverði í mögulegum yfirtökum. Fimm alþjóðlegir bankar hafa verið fengnir til ráðgjafar við skráninguna og sem umsjónaraðilar útboðs. Við hlökkum til samstarfs við þá og Euronext-kauphöllina í Amsterdam varðandi næstu skref.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 5.2.25 | 585,36 kr/kg |
Þorskur, slægður | 5.2.25 | 793,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 5.2.25 | 356,87 kr/kg |
Ýsa, slægð | 5.2.25 | 401,94 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 5.2.25 | 313,54 kr/kg |
Ufsi, slægður | 5.2.25 | 360,02 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 5.2.25 | 426,50 kr/kg |
5.2.25 Indriði Kristins BA 751 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.223 kg |
Ýsa | 82 kg |
Samtals | 7.305 kg |
5.2.25 Háey I ÞH 295 Lína | |
---|---|
Þorskur | 643 kg |
Hlýri | 283 kg |
Ýsa | 259 kg |
Steinbítur | 194 kg |
Karfi | 56 kg |
Ufsi | 17 kg |
Keila | 16 kg |
Samtals | 1.468 kg |
5.2.25 Sigurbjörg VE 67 Botnvarpa | |
---|---|
Ýsa | 10.434 kg |
Grásleppa | 798 kg |
Steinbítur | 390 kg |
Hlýri | 373 kg |
Keila | 17 kg |
Langa | 7 kg |
Skarkoli | 2 kg |
Samtals | 12.021 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 5.2.25 | 585,36 kr/kg |
Þorskur, slægður | 5.2.25 | 793,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 5.2.25 | 356,87 kr/kg |
Ýsa, slægð | 5.2.25 | 401,94 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 5.2.25 | 313,54 kr/kg |
Ufsi, slægður | 5.2.25 | 360,02 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 30.1.25 | 16,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 5.2.25 | 426,50 kr/kg |
5.2.25 Indriði Kristins BA 751 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.223 kg |
Ýsa | 82 kg |
Samtals | 7.305 kg |
5.2.25 Háey I ÞH 295 Lína | |
---|---|
Þorskur | 643 kg |
Hlýri | 283 kg |
Ýsa | 259 kg |
Steinbítur | 194 kg |
Karfi | 56 kg |
Ufsi | 17 kg |
Keila | 16 kg |
Samtals | 1.468 kg |
5.2.25 Sigurbjörg VE 67 Botnvarpa | |
---|---|
Ýsa | 10.434 kg |
Grásleppa | 798 kg |
Steinbítur | 390 kg |
Hlýri | 373 kg |
Keila | 17 kg |
Langa | 7 kg |
Skarkoli | 2 kg |
Samtals | 12.021 kg |