Samherji telur það ekki boðlegan málflutning hjá Helga Seljan, dagskrágerðarmann hjá RÚV, að „flytja ítrekað þau ósannindi að Namibíumenn hafi glatað störfum í namibískum sjávarútvegi eftir að félög tengd Samherja hófu starfsemi í landinu,“ að því er segir á vef Samherja. Telur fyrirtækið Helga vera vísa til rangra upplýsinga um útgerðir í Namibíu.
Áður hefur fyrirtækið sakað Helga um „gróf ósannindi“ í morgunútvarpi Rásar 2 um störf sem Helgi segir hafa tapast í Namibíu vegna starfsemi Samherja þar í landi. Sagði í tilkynningu á vef Samherja að orð Helga sýna hversu frjálslega fréttamenn Ríkisútvarpsins fari með staðreyndir.
Þessu svaraði Helgi á Facebook síðu sinni í gærkvöldi og vísar til greinar miðils í Namibíu sér til stuðnings.
Samherji segir á vef sínum Helga með þessu hafa „endurtekið rangar fullyrðingar sínar um glötuð störf í namibískum sjávarútvegi eftir að félög tengd Samherja hófu starfsemi í landinu. Þannig hefur hann endurflutt sömu ósannindi og hann fór með í morgunútvarpi Rásar 2.“
„Helgi vitnar í frétt götublaðsins The Namibian Sun þar sem fullyrt er að störf hafi tapast í namibískum sjávarútvegi eftir að fyrirtækið Namsov missti þúsundir tonna af úthlutuðum aflaheimildum vegna breyttra reglna um úthlutun. Fyrst skal áréttað að engin störf glötuðust í namibískum sjávarútvegi eftir breytingar á úthlutun aflaheimilda í hrossamakríl heldur fluttust störfin milli fyrirtækja og skipa,“ fullyrðir fyrirtækið.
Vísar Samherji til þess að fyrirtækið „Namsov var lengst af ekki í eigu Namibíumanna heldur var það í eigu suður-afrísku samsteypunnar Bidvest Group sem er metið á 8,4 milljarða dollara og er númer 1.062 á lista bandaríska tímaritsins Forbes yfir 2.000 stærstu fyrirtæki heims. Þetta eru semsagt störfin sem heimamenn áttu að hafa glatað, störf hjá suður-afrískri alþjóðasamsteypu. Það var ekki fyrr en á árinu 2018 sem Bidvest Group seldi Namsov til namibíska fyrirtækisins Tunacor.“
„Fram til ársins 2012 voru uppsjávarveiðar í Namibíu nær eingöngu í höndum tveggja fyrirtækja, Namsov og Erongo, sem voru lengst af bæði í eigu Suður-Afríkumanna. Hlutur heimamanna í namibískum sjávarútvegi jókst fyrst eftir að breytingar urðu á reglum um úthlutun á árunum 2011-2012 þegar aflaheimildir voru teknar frá gömlu suður-afrísku fyrirtækjunum,“ segir á vef Samherja og er bent á að það hafi verið eftir að „félög tengd Samherja og fleiri erlend útgerðarfyrirtæki hófu starfsemi í namibískum sjávarútvegi.“