Segja Jóhannes hafa handvalið tölvupósta

Höfuðstöðvar Samherja á Akureyri.
Höfuðstöðvar Samherja á Akureyri. mbl.is/Margrét Þóra

Útgerðarfyrirtækið Samherji segist hafa látið kanna þau gögn sem WikiLeaks hefur birt um félagið, en þar sé aðallega um að ræða mikið magn pósta úr pósthólfi Jóhannesar Stefánssonar uppljóstrara. Samherji segir að Jóhannes hafi handvalið tölvupósta og aðeins afhent um 42% af tölvupóstunum.

Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Samherja. 

Tekið er fram að tölvupóstarnir úr pósthólfi Jóhannesar séu þau gögn sem fjölmiðlar hafi stuðst við í umfjöllun um starfsemi félaga sem tengjast Samherja í Namibíu.

„Jóhannes hafði að minnsta kosti 44.028 tölvupósta í pósthólfi sínu milli áranna 2014 og 2016. Hann afhenti Wikileaks 18.497 tölvupósta frá þessu tímabili sem þýðir að hann afhenti aðeins 42% af tölvupóstunum. Flestir þeirra pósta sem Jóhannes afhenti ekki eru frá árinu 2015 en hann virðist ekki hafa afhent Wikileaks neina tölvupósta frá því ári ef undanskildir eru nokkrir póstar frá janúar. Þetta sést glögglega á meðfylgjandi grafi,“ segir Samherji í tilkynningunni.

Þetta graf birtir Samherji með tilkynningunni.
Þetta graf birtir Samherji með tilkynningunni. Graf/Samherji

Segja þetta vekja upp fleiri spurningar

„Sú aðferð sem hér hefur verið beitt, að handvelja tölvupósta, hlýtur að vekja upp fleiri spurningar en hún svarar. Hvert var efni þeirra pósta sem ekki voru birtir? Hvers vegna voru þau tímabil sem um ræðir valin en ekki allt tímabilið? Er ósamræmi í þeim gögnum sem var sleppt og þeim sem hingað til hefur verið fjallað um?

Sú staðreynd að 58% af tölvupóstunum voru aldrei birt hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir þá sem telja að frásögn Jóhannesar Stefánssonar sé rétt og sannleikanum samkvæm. Þeir fjölmiðlar sem fjallað hafa um málið þurfa líka að velta fyrir sér hvort þeir hafi aðeins séð þau gögn sem styðja frásögn heimildarmannsins en ekki heildarmyndina,“ segir ennfremur í tilkynningu Samherja. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.1.25 557,99 kr/kg
Þorskur, slægður 27.1.25 660,61 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.1.25 353,07 kr/kg
Ýsa, slægð 27.1.25 324,21 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.1.25 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 27.1.25 258,31 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 27.1.25 218,50 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.1.25 Sævar SF 272 Handfæri
Þorskur 177 kg
Samtals 177 kg
27.1.25 Dagrún HU 121 Þorskfisknet
Þorskur 484 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 497 kg
27.1.25 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet
Þorskur 1.116 kg
Ufsi 83 kg
Ýsa 26 kg
Karfi 4 kg
Samtals 1.229 kg
27.1.25 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa
Karfi 11.675 kg
Steinbítur 4.293 kg
Skarkoli 1.398 kg
Samtals 17.366 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.1.25 557,99 kr/kg
Þorskur, slægður 27.1.25 660,61 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.1.25 353,07 kr/kg
Ýsa, slægð 27.1.25 324,21 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.1.25 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 27.1.25 258,31 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 27.1.25 218,50 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.1.25 Sævar SF 272 Handfæri
Þorskur 177 kg
Samtals 177 kg
27.1.25 Dagrún HU 121 Þorskfisknet
Þorskur 484 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 497 kg
27.1.25 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet
Þorskur 1.116 kg
Ufsi 83 kg
Ýsa 26 kg
Karfi 4 kg
Samtals 1.229 kg
27.1.25 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa
Karfi 11.675 kg
Steinbítur 4.293 kg
Skarkoli 1.398 kg
Samtals 17.366 kg

Skoða allar landanir »