Heimilar 127 þúsund tonna loðnuveiðar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritar reglugerð sem heimilar …
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritar reglugerð sem heimilar veiði á 127.300 tonnum af loðnu. Ljósmynd/Atvinnuvegaráðuneytið

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu.

Hafrannsóknastofnun kynnti í gærkvöldi nýja ráðgjöf um veiðar á allt að 127.300 tonnum af loðnu á yfirstandandi vertíð, en fyrri ráðgjöf nam 61 þúsund tonnum.

Íslenskum skipum verður með reglugerðinni sem Kristján Þór undirritaði í morgun veitt heimild til veiða á 69.834 tonnum af loðnu. Skip annarra ríkja fá heimild til veiða á rúmlega 57 þúsund tonnum eða um 45% af heildarafla. Ástæða þess er í tilkynningunni sögð vera „gildandi samningar við önnur ríki sem taka þarf tillit til áður en til úthlutunar kemur til íslenskra skipa. Annars vegar er samningur við Norðmenn vegna þorskveiða íslenskra skipa í Barentshafi og hins vegar tvíhliða samningur við Færeyjar.“

Þá segir að „Hafrannsóknastofnun mun ekki fara til mælinga að nýju að óbreyttu en mun fylgjast með fréttum af miðunum og bregðast við ef vísbendingar koma um nýjar loðnugöngur“.

„Þessi ákvörðun er afrakstur umfangsmestu loðnuleitar seinni ári. Þetta er vissulega ekki mikið magn í sögulegu samhengi, en þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenskt samfélag enda útflutningsverðmæti upp á hátt í 20 milljarða. Öflugt samstarf stjórnvalda, sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar og fyrirtækja í sjávarútvegi við þessa leit hefur verið lykillinn að þessum árangri,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.1.25 629,30 kr/kg
Þorskur, slægður 20.1.25 694,78 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.1.25 415,51 kr/kg
Ýsa, slægð 20.1.25 287,52 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.1.25 279,87 kr/kg
Ufsi, slægður 20.1.25 251,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 20.1.25 234,68 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.1.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 6.817 kg
Karfi 3.517 kg
Samtals 10.334 kg
20.1.25 Harðbakur EA 3 Botnvarpa
Steinbítur 8.204 kg
Þorskur 4.428 kg
Skarkoli 4.215 kg
Karfi 2.194 kg
Ýsa 1.184 kg
Þykkvalúra 889 kg
Samtals 21.114 kg
20.1.25 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 31.865 kg
Karfi 10.594 kg
Samtals 42.459 kg
20.1.25 Áskell ÞH 48 Botnvarpa
Þorskur 28.858 kg
Karfi 19.379 kg
Ýsa 4.883 kg
Ufsi 1.835 kg
Langa 1.290 kg
Skarkoli 1.208 kg
Steinbítur 415 kg
Blálanga 271 kg
Sandkoli 152 kg
Þykkvalúra 102 kg
Skötuselur 16 kg
Samtals 58.409 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.1.25 629,30 kr/kg
Þorskur, slægður 20.1.25 694,78 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.1.25 415,51 kr/kg
Ýsa, slægð 20.1.25 287,52 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.1.25 279,87 kr/kg
Ufsi, slægður 20.1.25 251,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 20.1.25 234,68 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.1.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Ýsa 6.817 kg
Karfi 3.517 kg
Samtals 10.334 kg
20.1.25 Harðbakur EA 3 Botnvarpa
Steinbítur 8.204 kg
Þorskur 4.428 kg
Skarkoli 4.215 kg
Karfi 2.194 kg
Ýsa 1.184 kg
Þykkvalúra 889 kg
Samtals 21.114 kg
20.1.25 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 31.865 kg
Karfi 10.594 kg
Samtals 42.459 kg
20.1.25 Áskell ÞH 48 Botnvarpa
Þorskur 28.858 kg
Karfi 19.379 kg
Ýsa 4.883 kg
Ufsi 1.835 kg
Langa 1.290 kg
Skarkoli 1.208 kg
Steinbítur 415 kg
Blálanga 271 kg
Sandkoli 152 kg
Þykkvalúra 102 kg
Skötuselur 16 kg
Samtals 58.409 kg

Skoða allar landanir »