Þorsteinn Már kærir Jóhannes Stefánsson

Þorsteinn Már Baldvinsson.
Þorsteinn Már Baldvinsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur lagt fram kæru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á hendur Jóhannesi Stefánssyni, uppljóstrara og fyrrverandi starfsmanni Samherja í Namibíu, fyrir rangar sakargiftir vegna fullyrðinga um tilraun til manndráps og frelsissviptingar.

Lögmaður Þorsteins Más lagði fram kæruna í morgun, að því er kemur fram á vefsíðu Samherja.

„Tilefni kærunnar eru ýmis ummæli sem Jóhannes, eða fólk á hans vegum, hefur látið falla í fjölmiðlum og víðar að undanförnu vegna fjársöfnunar sem er hafin undir þeim formerkjum að tryggja þurfi Jóhannesi heilbrigðisþjónustu vegna eitrunar því íslenskt heilbrigðiskerfi ráði ekki við það verkefni að veita honum bót meina sinna,“ segir á vefsíðunni.

„Þannig er berum orðum fullyrt á vefsíðu fyrir umrædda fjársöfnun að Jóhannes sé „fórnarlamb manndrápstilraunar“ sem hafi átt sér stað í Höfðaborg í Suður-Afríku snemma árs 2017 og segir Jóhannes í viðtali við namibískt dagblað að fyrrverandi vinnuveitandi hans „hafi haft fulla vitneskju“ um hana. Í öðru viðtali er svo haft eftir Jóhannesi að hann hafi þurft að þola tilraunir til mannráns oftar en einu sinni. Þessar fullyrðingar hans hafa svo margsinnis verið endurfluttar í öðrum fjölmiðlum bæði hér á landi og erlendis,“ segir þar einnig.

„Í kærunni kemur fram að Jóhannes kunni að hafa með ummælum sínum gefið í skyn að forstjóri Samherja hafi á einhvern hátt tengst meintri eitrun og meintum tilraunum til að nema hann á brott. Þannig virðist Jóhannes vera að reyna að koma því til leiðar að forstjóri Samherja verði sakaður um þessi brot, þ.e. tilraun til manndráps og tilraun til frelsissviptingar eða einhvers konar hlutdeild eða tengsl við slík brot. Með þessu kunni Jóhannes að hafa gerst sekur um rangar sakargiftir í garð Þorsteins Más Baldvinssonar.“

Jóhannes Stefánsson.
Jóhannes Stefánsson. Skjáskot/Kveikur

Þess er krafist að lögreglurannsókn verði hafin, tekin verði skýrsla af Jóhannesi og gagna aflað frá suðurafrískum lögregluyfirvöldum. Þá er lögreglunni bent á það gæti talist eðlilegt að rannsaka í leiðinni hvort fjársvik hafi verið framin í tengslum við fjársöfnunina sem áður er getið.

„Þótt fullyrðingar Jóhannesar Stefánssonar séu hreinn hugarburður, sem mun að öllum líkindum rýra trúverðugleika hans enn frekar, er ljóst að þær fela í sér mjög alvarlegar ásakanir í garð forstjóra Samherja. Með þeim gengur Jóhannes jafnframt mun lengra en áður hefur sést,“ segir á vefsíðunni.

Þorsteinn Már segist á vefsíðunni ekki hafa brugðist sérstaklega við ásökunum Jóhannesar hingað til. Núna geti hann aftur á móti ekki orða bundist lengur „því nú vill Jóhannes meina að ég eða samstarfsmenn mínir hafi gert tilraun til að ráða honum bana. Lengra verður ekki ekki gengið en að bera mönnum á brýn að ætla að ráða menn af dögum,“ segir hann.

„Mér er gróflega misboðið og því er óhjákvæmilegt að spyrna við fótum. Þessu til viðbótar freistar Jóhannes þess nú að blekkja fólk til að leggja fé í söfnun undir þeim formerkjum að honum hafi verið sýnt banatilræði. Þetta er allt saman ósköp dapurlegt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.11.24 536,59 kr/kg
Þorskur, slægður 22.11.24 560,82 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.11.24 347,38 kr/kg
Ýsa, slægð 22.11.24 257,15 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.11.24 199,97 kr/kg
Ufsi, slægður 22.11.24 282,11 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.11.24 231,05 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 22.11.24 127,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.11.24 Tryggvi Eðvarðs SH 2 Lína
Ýsa 6.782 kg
Þorskur 318 kg
Hlýri 25 kg
Steinbítur 8 kg
Langa 6 kg
Karfi 4 kg
Samtals 7.143 kg
22.11.24 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 724 kg
Keila 212 kg
Ýsa 103 kg
Hlýri 42 kg
Ufsi 12 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.098 kg
22.11.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet
Þorskur 2.542 kg
Ufsi 289 kg
Ýsa 205 kg
Karfi 93 kg
Skarkoli 5 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 3.138 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.11.24 536,59 kr/kg
Þorskur, slægður 22.11.24 560,82 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.11.24 347,38 kr/kg
Ýsa, slægð 22.11.24 257,15 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.11.24 199,97 kr/kg
Ufsi, slægður 22.11.24 282,11 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 22.11.24 231,05 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 22.11.24 127,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.11.24 Tryggvi Eðvarðs SH 2 Lína
Ýsa 6.782 kg
Þorskur 318 kg
Hlýri 25 kg
Steinbítur 8 kg
Langa 6 kg
Karfi 4 kg
Samtals 7.143 kg
22.11.24 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 724 kg
Keila 212 kg
Ýsa 103 kg
Hlýri 42 kg
Ufsi 12 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.098 kg
22.11.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet
Þorskur 2.542 kg
Ufsi 289 kg
Ýsa 205 kg
Karfi 93 kg
Skarkoli 5 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 3.138 kg

Skoða allar landanir »