Þóra og Aðalsteinn yfirheyrð í gær

Þóra Arnórsdóttir, ristjórn Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður hjá Stundinni.
Þóra Arnórsdóttir, ristjórn Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður hjá Stundinni. Samsett mynd

Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kveiks á Ríkisútvarpinu, og Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, voru boðuð og mættu í yfirheyrslu hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í gær. 

Þetta staðfesta þau bæði í samtali við mbl.is. 

Þá voru Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, og Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður á Kjarnanum, yfirheyrðir fyrr í mánuðinum. 

Fjölmiðlamennirnir fjórir hafa allir stöðu sakbornings í máli þar sem brotið var á kynferðislegri friðhelgi Páls Steingrímssonar, skipstjóra hjá Samherja. 

Sakarefni liggur ekki fyrir

Málið tengist stuldi á síma Páls, á meðan hann lá þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir eitrun. Gögn úr síma hans rötuðu í fréttir sem birtust á Stundinni og í Kjarnanum. 

Meint aðkoma hvers og eins fjölmiðlamanns að brotinu liggur ekki fyrir. 

Þóra Arnórsdóttir segir í samtali við mbl.is að yfirheyrslan hafi verið heldur furðuleg upplifun. „Það verður að minnsta kosti afar undarlegt ef meira verður úr þessu máli,“ segir Þóra. 

Hún segir að hún hafi mestmegins verið spurð út í hluti sem hún gæti ekki tjáð sig um, vinnu sinnar vegna. Hún segir að hvergi hafi komið fram hvað nákvæmlega henni sé gefið að sök. „Mér hefur ekki verið kynnt sakarefni neitt frekar – sem er mjög undarlegt.“

Bæði Þóra og Aðalsteinn höfðu áður látið reyna á lögmæti boðunar þeirra í yfirheyrslu en Landsréttur úrskurðaði boðunina réttmæta. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.267 kg
Skarkoli 2.954 kg
Þorskur 1.655 kg
Ýsa 409 kg
Samtals 8.285 kg
27.7.24 Brattanes NS 123 Handfæri
Ufsi 18 kg
Samtals 18 kg
27.7.24 Ari Óskar ÍS 127 Handfæri
Þorskur 1.416 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 1.427 kg
27.7.24 Digri NS 60 Handfæri
Þorskur 1.640 kg
Samtals 1.640 kg
27.7.24 Stína SH 91 Grásleppunet
Grásleppa 277 kg
Samtals 277 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.7.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.267 kg
Skarkoli 2.954 kg
Þorskur 1.655 kg
Ýsa 409 kg
Samtals 8.285 kg
27.7.24 Brattanes NS 123 Handfæri
Ufsi 18 kg
Samtals 18 kg
27.7.24 Ari Óskar ÍS 127 Handfæri
Þorskur 1.416 kg
Ufsi 11 kg
Samtals 1.427 kg
27.7.24 Digri NS 60 Handfæri
Þorskur 1.640 kg
Samtals 1.640 kg
27.7.24 Stína SH 91 Grásleppunet
Grásleppa 277 kg
Samtals 277 kg

Skoða allar landanir »