Þrír sviptir veiðileyfi í janúar vegna brottkasts

Siggi Bjarna GK-5,neta- og dragnótabátur Nesfisks á Suðurnesjum, hefur verið …
Siggi Bjarna GK-5,neta- og dragnótabátur Nesfisks á Suðurnesjum, hefur verið sviptur veiðileyfi í þrjár vikur vegna brottkasts sem eftirlitsmenn sáu með aðstoð dróna. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Fiskistofa birti þrjár ákvarðanir um veiðileyfasviptingar í janúar og snúa þær allar að brottkasti, en eitt mál hefur verið kært til lögreglu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.

Dragnóta- og netabáturinn Siggi Bjarna GK-5 hefur sviptur leyfi til veiða í atvinnuskyni í þrjár vikur vegna „meiriháttar brota“ sem Fiskistofa flokkar undir „refsinæmt athafnaleysi“ og hefur málið verið kært til lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Athygli vekur að um sé að ræða annan bát Nesfisks ehf. sem sviptur er veiðileyfi vegna refsinæms athafnaleysis áhafnar á rúmum mánuði, en í desember var Sigurfari GK sviptur leyfi til veiða í fjórar vikur. Það mál var einnig kært til lögreglu.

Þá var Rifsari SH-70 sviptur leyfi til veiða í atvinnuskyni í tvær vikur, vegna þess sem Fiskistofa segir alvarleg og ámælisverð brot sem framin voru af beinum ásetningi. Auk þess var handfærabáturinn Jón Bóndi BA-7 sviptur leyfi til strandveiða í sjö daga frá gildistöku næsta strandveiðileyfis vegna ámælisverðra brota, sem þó teljast ekki meiriháttar.

Nánar má lesa um leyfissviptingarnar og málsatvik í Morgunblaðinu í dag.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 413,21 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 502,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 327,00 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 261,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 142,79 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 152,49 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,52 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 413,21 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 502,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 327,00 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 261,10 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 142,79 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 152,49 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,52 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »